Nýkrýndir Íslandsmeistarar KR í borðtennis: Tómas Ingi Shelton (2.flokkur karla), Fríður Rún Sigurðardóttir (1.flokkur kvenna og tvíliðaleikur kvenna) og Guðrún G Björnsdóttir (einliðaleikur kvenna og tvíliðaleikur kvenna)
06. apríl 2009 | 22:40
Síðustu æfingar fyrir páska eru þriðjudaginn 7 apríl. Æfingar byrja aftur samkvæmd æfingatöflu miðvikudaginn 15 apríl.
26. desember 2008 | 13:07
Á síðasta æfingadegi fyrir jól unnu 13 krakkar sér inn bronsmerki borðtennisakademíunnar. Þetta merki er veitt þeim sem hafa náð ákveðinni grunntækni í borðtennis. Kjartan Briem margfaldur íslandsmeistari og landsliðsmaður í borðtennis var fulltrúi borðtennisakademíunnar til þess að staðfesta að sú grunngeta sem krafist er hafi verið til staðar. Eftirtaldir krakkar unnu sér inn bronsmerki akademíunnar í þetta sinn: Ásdís Karen Halldórsdóttir, Díana Hoda, Sólrún Embla Þórðardóttir, Aurora Erika Luciano, Gylfi
Styrmisson, Gunnar Atli Harðarson, Hlífar Örn Jakobsson, Eyþór Gylfason, Steinn Þorkelsson, Guðjón Páll Tómasson, Hróar Styrmisson, Magnús Sveinn Sigursteinsson, Þórir G, Þorbjarnarson. Þetta mun verða endurtekið um miðjan Janúar fyrir þá sem eiga eftir að spreyta sig.
15. desember 2008 | 14:12
Síðustu miðvikudagsmót haustsins verða næstkomandi fimmtudag 18. desember í æfingasal deildarinnar. Þriðja deild klukkan 15.30, önnur deild klukkan 16.30 en fyrsta deild verður spiluð klukkan 17.30 á föstudaginum 19 desember. Vegleg verðlaun verða veitt sigurvegara haustsins að keppni lokinni. Allir geta tekið þátt og það eru engin keppnisgjöld. Mótin hafa verið í gangi í allt haust og
