Póstlisti Borðtennisdeildar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti *

 

 

Fréttir | Eldri fréttir
31. ágúst 2010 | 12:16
| Borðtennisdeild

Þá er nýr borðtennisvetur að hefjast hjá borðtennisdeild KR. Æfingar hefjast næstkomandi þriðjudag þann 31 ágúst samkvæmt æfingatöflu sem er hér fyrir neðan.

25. ágúst 2010 | 18:33
| Borðtennisdeild

Helgina 24.-25. júlí tók Kári Mímisson okkar þátt í Lake Superior International Open mótinu í Duluth í Minnesotafylki Bandaríkjanna. Hann fór í boði Thors Truelssonar sem kom og tók þátt í 40 ára afmælismóti Borðtennisdeildarinnar á síðasta ári. Kári sýndi glæsilegan árangur á mótinu

19. maí 2010 | 22:16
| Borðtennisdeild

Á aðalfundi Borðtennisdeildar KR sem var haldinn 25. apríl og síðan framhaldið 13. maí síðastliðinn var kosin ný stjórn Borðtennisdeildarinnar.


27. apríl 2010 | 23:49
| Borðtennisdeild

KR-ingar urðu að bíta í það súra epli að bíða ósigur í úrslitaleik Íslandsmótsins í 1.deild karla í kvöld , 0-4. Allt gekk upp hjá Víkingum meðan okkar menn máttu þola 3-2 ósigur í þremur af fjórum leikjum kvöldsins. Þar með rann titilinn okkur úr greipum, en KR hefur sigrað deildina síðustu tvö árin.

26. apríl 2010 | 12:11
| Borðtennisdeild

Hinn ungi en stórefnilegi Davíð Jónsson náði frábærum áfanga um helgina þegar hann sigraði á lokamóti Grand-Prix mótaraðarinnar í borðtennis, en þar sló hann út á leiðinni þrjá af sterkustu leikmönnum á landinu.

Næsta síða

Brot úr sögunni
Nýkrýndir Íslandsmeistarar KR í borðtennis: Tómas Ingi Shelton (2.flokkur karla), Fríður Rún Sigurðardóttir (1.flokkur kvenna og tvíliðaleikur kvenna) og Guðrún G Björnsdóttir (einliðaleikur kvenna og tvíliðaleikur kvenna)
 
                      
Úr formannshorninu
 
 
Tilkynningar
06. apríl 2009 | 22:40

Síðustu æfingar fyrir páska eru þriðjudaginn 7 apríl. Æfingar byrja aftur samkvæmd æfingatöflu miðvikudaginn 15 apríl.

26. desember 2008 | 13:07

Á síðasta æfingadegi fyrir jól unnu 13 krakkar sér inn bronsmerki borðtennisakademíunnar. Þetta merki er veitt þeim sem hafa náð ákveðinni grunntækni í borðtennis. Kjartan Briem margfaldur íslandsmeistari og landsliðsmaður í borðtennis var fulltrúi borðtennisakademíunnar til þess að staðfesta að sú grunngeta sem krafist er hafi verið til staðar. Eftirtaldir krakkar unnu sér inn bronsmerki akademíunnar í þetta sinn: Ásdís Karen Halldórsdóttir, Díana Hoda, Sólrún Embla Þórðardóttir, Aurora Erika Luciano, Gylfi Styrmisson, Gunnar Atli Harðarson, Hlífar Örn Jakobsson, Eyþór Gylfason, Steinn Þorkelsson, Guðjón Páll Tómasson, Hróar Styrmisson, Magnús Sveinn Sigursteinsson, Þórir G, Þorbjarnarson. Þetta mun verða endurtekið um miðjan Janúar fyrir þá sem eiga eftir að spreyta sig.

15. desember 2008 | 14:12

Síðustu miðvikudagsmót haustsins verða næstkomandi fimmtudag 18. desember í æfingasal deildarinnar. Þriðja deild klukkan 15.30, önnur deild klukkan 16.30 en fyrsta deild verður spiluð klukkan 17.30 á föstudaginum 19 desember. Vegleg verðlaun verða veitt sigurvegara haustsins að keppni lokinni. Allir geta tekið þátt og það eru engin keppnisgjöld. Mótin hafa verið í gangi í allt haust og


Leita

Vefur Borðtennisdeildar
Google

 

Á döfinni
Íslandsmót yngri unglinga
Ísandsmót yngri unglinga verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Hvollsvelli næstkomandi laugardag 21 mars. Nánari upplýsingar má finna á vef borðtennissambandsins .

Forgjafarmót
Sunnudaginn 28. desember ætlum við að halda forgjafarmót fyrir alla í borðtennisdeildinni og fyrir aðra fjölskyldumeðlimi sem vilja taka þátt. Mótið byrjar klukkan 11. og er æskilegt en þó ekki nauðsynlegt að skrá þátttöku með því að senda póst á viddi@greifarnir.is. Það kostar aðeins 100 krónur að taka þátt. Yfirþjálfari deildarinnar Kristján Viðar ákvarðar forgjöf og verður reynt að koma því þannig fyrir að allir hafi jafna möguleika til að sigra þó svo að það sé í raun kannski ekki hægt. Spilað verður ein lota upp í 51 í hverri viðureign og þannig munu sterkustu leikmenn deildarinnar byrja í 0 eða nálægt því en hæsta forgjöf sem veitt verður er 49. 

Fyrri síða
Næsta síða

 

 


Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til bordtennis@kr.is