Nýjustu fréttirnar RSS
23. febrúar 2012 | 00:40

KR-A sigraði Víking-B í 1. deild karla í borðtennis
KR-A sigraði Víking-B 4-1 á útivelli í 9. umferð í 1. deild karla í borðtennis í kvöld. KR-A er í 2. sæti í deildinni fyrir síðustu umferðina með 14 stig. Í síðustu umferðinni mætir liðið A-liði Víkings, sem er í efsta sæti.


22. febrúar 2012 | 20:00

Minnibolti  - stelpurnar komnar í A-riðil

Stelpurnar í minnibolta kvenna komu, sáu og sigruðu þegar þær kepptu í B-riðli á Íslandsmótinu í Borgarnesi helgina 11.―12. febrúar. Þær unnu alla sína leiki og eru því komnar upp í A-riðil á hárréttum tíma fyrir síðasta mót vetrarins þar sem keppt verður til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

Stelpunum hefur farið mikið fram í vetur undir öruggri stjórn Brynhildar Jónsdóttur þjálfara. Þeim hefur jafnt og þétt vaxið ásmegin og öflugt starf vetrarins skilaði sér í leikjum helgarinnar



22. febrúar 2012 | 19:07

Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar KR
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar KR verður haldinn fimmtudaginn 1. mars kl. 18.


22. febrúar 2012 | 18:59

Aðalfundur Skíðadeildar KR
Aðalfundur Skíðadeildar KR verður haldinn miðvikudaginn 29. febrúar í félagsheimili KR.


22. febrúar 2012 | 09:00

Mfl. karla: KR - Fram á fimmtudag
KR leikur við Fram í Lengjubikarnum á fimmtudag. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 19.00.


21. febrúar 2012 | 09:29

Ásgeir Íslandsmeistari í axlatökum 2012
Íslandsmeistaramót í backhold (axlatökum) fór fram 29. janúar.  Ásgeir S. Víglundsson úr Glímudeild KR sigraði sinn flokk.


21. febrúar 2012 | 08:00

Happadrætti: Árituð landsliðstreyja
Starfsfólk Vöruhótelsins safnar fé fyrir fjölskyldu Sigursteins Gíslasonar með happadrætti. Vinningurinn er landsliðstreyja sem samherjar Sigursteins hafa áritað.


20. febrúar 2012 | 22:00
| KR

KR-ingurinn
Inn á heimasíðu KR /adalstjorn/kr-ingurinn/  er búið að setja upplýsingar um verkefnið KR-ingurinn sem byrjað er að innleiða hjá knattspyrnudeild og handknattleiksdeild.  


20. febrúar 2012 | 09:00

KR-getraunir: Staðan eftir 5. umferð Vorleiksins
Staðan eftir 5. umferð Vorleiks KR-getrauna liggur fyrir. KRÁS og Rammi höfðu alla leikina 13 rétta og 19 hópar höfðu 12 leiki rétta.


18. febrúar 2012 | 12:10

B-lið KR sigraði Dímon í 1. deild kvenna í borðtennis
B-lið KR sigraði Dímon 3-1 í 1. deild kvenna í borðtennis í KR-heimilinu í gærkvöldi. KR-B og Dímon eru í 3.-4. sæti í deildinni með 4 stig eftir 6 leiki.


17. febrúar 2012 | 09:00

Mfl. karla: KR - Víkingur Ól. - leik frestað
Leik KR og Víkings frá Ólafsvík í Lengjubikar karla hefur verið frestað. Hann var á dagskrá á morgun, laugardaginn 18. febrúar, en verður leikinn sunnudaginn 4. mars, í Egilshöll og hefst kl. 18.


16. febrúar 2012 | 08:00

KR er 113 ára í dag
Það er fánadagur í dag. KR á afmæli og er 113 ára en félagið var stofnað á þessum degi árið 1899. Af því tilefni verður boðið upp á léttar kaffiveitingar í félagsheimili KR milli kl. 17 og 18 í dag.




Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is