Póstlisti Körfunnar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti
Fréttir
11. desember 2008 | 10:25
| Körfuknattleiksdeild

Bomburnar mæta Haukum í kvöld í Subwaybikarkeppni kvenna

B-lið KR (Bomburnar) mætir toppliði Iceland Expressdeildar kvenna, Haukum í 16-liða úrslitum Subwaybikarsin að Ásvöllum í kvöld. Bomburnar eru skráðar til leiks í bikarnum í fyrsta skipti og ákváðu að því tilefni að taka eina æfingu í gærkvöldi. Fín stemmning er í hópnum.

Mynd: Sigrún Skarphéðinsdóttir er klár í slaginn í kvöld.

Meðal þeirra sem skipa liðið eru þriggjastigasskyttan síunga Sigrún Skarphéðinsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Lilja Oddsdóttir, Anna Svandís Gísladóttir, Guðrún Gestsdóttir og fleiri kempur eins og Hrefna og Ingibjörg Jara. Þær eiga erfiðan leik fyrir höndum gegn gríðarsteku liði Hauka. Þær sitja nú í efsta sæti Iceland Express deildar kvenna með 9 sigra í 10 leikjum. KR stúlkur eru með skemmtilega blöndu í léttleikandi liði og verður leikurinn væntanlega augnakonfekt hið mesta fyrir áhorfendur að Ásvöllum í kvöld. Hvetjum unnendur hinnar göfugu íþróttar að mæta.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Körfunnar
Google

Á næstunni

Eldri fréttir - ýtið hér        

Æfingatafla kkd. KR 

Miðvikudaginn 10 febrúar 
Iceland Express deild kvenna
KR - Grindavík
DHL-höllinni kl. 19:15 

Sunnudaginn  14 febrúar 
Iceland Express deild karla 
KR - Fjölnir
DHL-höllinni kl. 19:15

Leikir KR

Skráningarblað 2009 - 2010

Frístundakortið



Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til karfa@kr.is