
KR-ingar hófu leikinn á þrist frá Matthíasi Orra sem lék mjög vel, KR-ingar komust í 11-2 og leiddu 19-11 eftir að hafa verið komnir í 16-6. Tvær þriggjastiga körfur frá Erlendi settu stöðuna í 16-12 en Matthías lokaði fyrsta leikhluta einsog hann opnaði hann með þrist. Emil Karel Einarsson var áberandi hjá Þórsurum og setti hann þriðja þristinn í röð fyrir Þórsara og staðan 19-15. Oddur Rúnar fékk þrjú vítaskot sem komu KR-ingum í 22-15. Martin Hermannsson fékk sína þriðju villu og sat útaf í smá stund. Emil hélt Þórsurum inní leiknum með góðum leik, en þeir Matthías Orri og Þorgeir Blöndal voru einu sem skoruðu fyrir KR það sem eftir lifði af öðrum leikhluta og leiddu 33-23. Matthías Orri var stigahæstur í fyrri hálfleik hjá KR-ingum með 18 stig en næstur kom Martin með 7 stig.
Í þriðja leikhluta skoraði Adam Karl fjögur fyrstu stig KR-inga í síðari hálfleik en KR-ingar misstu boltann og fengu á sig hraðupphlaup, Martin fékk á sig fjórðu villuna og Matthías snéri sig mjög illa og lék ekkert meira í leiknum. Þórsarar með þá Emil og Pálma í fararbroddi minnkuðu muninn í 37-32. Martin Hermannsson steig upp og skoraði næstu níu stig KR-inga og Oddur Rúnar Kristjánsson endaði leikhlutann með þriggjastigakörfu og staðan eftir þrjá leikhluta 48-37. Martin hóf fjórða leikhluta með þrist og KR-ingar komnir í þægilega stöðu. Emil skoraði grimmt fyrir Þór og minnkuðu þeir muninn í 53-43 áður en Oddur skoraði átta stig á stuttum tíma og kláraði leikinn. Lokatölur 65-50.

Eldri fréttir - ýtið hér
Æfingatafla kkd. KR
Miðvikudaginn 10 febrúar
Iceland Express deild kvenna
KR - Grindavík
DHL-höllinni kl. 19:15
Sunnudaginn 14 febrúar
Iceland Express deild karla
KR - Fjölnir
DHL-höllinni kl. 19:15
Leikir KR
Skráningarblað 2009 - 2010
Frístundakortið
