kr

Póstlisti Körfunnar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti
Eldri fréttir | Nýjustu fréttir
22. febrúar 2012 | 20:00
| Körfuknattleiksdeild

Stelpurnar í minnibolta kvenna komu, sáu og sigruðu þegar þær kepptu í B-riðli á Íslandsmótinu í Borgarnesi helgina 11.?12. febrúar. Þær unnu alla sína leiki og eru því komnar upp í A-riðil á hárréttum tíma fyrir síðasta mót vetrarins þar sem keppt verður til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

Stelpunum hefur farið mikið fram í vetur undir öruggri stjórn Brynhildar Jónsdóttur þjálfara. Þeim hefur jafnt og þétt vaxið ásmegin og öflugt starf vetrarins skilaði sér í leikjum helgarinnar


22. febrúar 2012 | 19:07
| Körfuknattleiksdeild

Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar KR verður haldinn fimmtudaginn 1. mars kl. 18.

10. febrúar 2012 | 19:51
| Körfuknattleiksdeild

Bein netútsending frá leik KR og Stjörnunnar
Leikur KR og Stjörnunnar er sýndur beint hér á heimasíðu KR. Verið er að taka KR-tv í gegn með nýjum tækjabúnaði og uppfærslum og gætu því verið smávægilegri hnökrar á útsendingu og hljóði til að byrja með en við biðjum fólk að vera þolinmótt  enda er ætlunin að KRtv verði flottara en nokkru sinni fyrr. Hægt er að nálgast útsendinguna með því að ýta HÉR.

06. febrúar 2012 | 22:41
| Körfuknattleiksdeild

8. flokks mót um helgina

Sjöundi flokkur karla (f. 1999) lék um helgina á þriðja áttunda flokks Íslandsmóti tímabilsins en í þeim flokki eru drengir fæddir 1998. Liðið hóf í haust keppni í B riðli og hefur haldið sér í honum í vetur. Leikur það sem b lið KR en a lið félagsins er í A riðli og trónir þar á toppnum.
Leikið var í DHL höllinni þar sem aðstaða og umgjörð voru til mikillar fyrirmyndar.


04. febrúar 2012 | 13:07
| Körfuknattleiksdeild

HARÐFISKSSALA KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR KR

Kæru KR-ingar!

Þessa dagana stendur körfuknattleiksdeild KR fyrir harðfisksölu. Harðfiskur er vara sem er bæði lystug og holl og geymist vel í t.d. frysti og því hægt að grípa í við öll tækifæri. Harðfiskurinn sem er í boði er gæðavara og svíkur engan


31. janúar 2012 | 21:00
| Körfuknattleiksdeild

Kolbeinn sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ
Kolbeinn Pálsson varð þess heiðurs aðnjótandi að vera sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ á 100 ára afmæli ÍSÍ á laugardaginn var.
Afmælisboð var haldið hátíðlegt í Ráðhúsi Reykjavíkur og voru fjölmargir gestir viðstaddir, meðal annars forseti Evrópsku Ólympíunefndarinnar.
Þrír aðrir voru sæmdir þessum heiðri ásamt Kolbeini. Við afhendinguna var eftirfarandi texti lesinn fyrir gesti:

28. janúar 2012 | 11:17
| Körfuknattleiksdeild

M.fl. karla sló Snæfell út úr Powerade bikarnum og drengjaflokkurinn hermdi eftir og sló Snæfell einnig út úr bikarnum á fimmtudagskvöldið.

Í unglingaflokki er risaslagur milli KR og Njarðvíkur,

í 11.flokki mætast Íslandsmeistarar undanfarinna ára KR og Stjarnan á miðvikudaginn nk í KR heimilinu kl 20.00,

í 10.flokki mætir KR liðið Íslandsmeisturum, Haukum í Hafnarfirði.

Í 10. Flokki kvenna mætir KR Grindavík á útivelli og

í 9.flokki kvenna fer KR til Keflavíkur.


Næsta síða

Leita

Vefur Körfunnar
Google

Á næstunni
Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is