11. desember 2008 | 10:25
| Körfuknattleiksdeild

Bomburnar mæta Haukum í kvöld í Subwaybikarkeppni kvenna

B-lið KR (Bomburnar) mætir toppliði Iceland Expressdeildar kvenna, Haukum í 16-liða úrslitum Subwaybikarsin að Ásvöllum í kvöld. Bomburnar eru skráðar til leiks í bikarnum í fyrsta skipti og ákváðu að því tilefni að taka eina æfingu í gærkvöldi. Fín stemmning er í hópnum.

Mynd: Sigrún Skarphéðinsdóttir er klár í slaginn í kvöld.

Meðal þeirra sem skipa liðið eru þriggjastigasskyttan síunga Sigrún Skarphéðinsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Lilja Oddsdóttir, Anna Svandís Gísladóttir, Guðrún Gestsdóttir og fleiri kempur eins og Hrefna og Ingibjörg Jara. Þær eiga erfiðan leik fyrir höndum gegn gríðarsteku liði Hauka. Þær sitja nú í efsta sæti Iceland Express deildar kvenna með 9 sigra í 10 leikjum. KR stúlkur eru með skemmtilega blöndu í léttleikandi liði og verður leikurinn væntanlega augnakonfekt hið mesta fyrir áhorfendur að Ásvöllum í kvöld. Hvetjum unnendur hinnar göfugu íþróttar að mæta.

Til baka