Mynd: Bikarmeistarar 2009, 9. flokkur drengja. Efri röð frá vinstri, Sigurður Andri Jóhannsson, Steinar Viðarsson, Arnar Sveinn Harðarson, Þorgeir Kristinn Blöndal, Adam Karl Helgason og fyrirliðinn Matthías Orri Sigurðarson. Neðri röð frá vinstri, Álfgeir Aljendro Önnuson, Óðinn Páll Ríkarðsson, Þórarinn Þórðarson, Oddur Rúnar Kristjánsson, Martin Hermannsson og Ingi Þór Steinþórsson þjálfari.
Myndina tók Atli Sveinsson
Eftir að hafa lagt feykisterkt Njarðvíkurlið í sextánliða úrslitum fóru KR-ingar létt í gegnum átta-liða og undanúrslit. Mótherjarnir í úrslitaleiknum voru Þór Þorlákshöfn sem alltaf hafa verið hörkuleikir.

KR-ingar hófu leikinn á þrist frá Matthíasi Orra sem lék mjög vel, KR-ingar komust í 11-2 og leiddu 19-11 eftir að hafa verið komnir í 16-6. Tvær þriggjastiga körfur frá Erlendi settu stöðuna í 16-12 en Matthías lokaði fyrsta leikhluta einsog hann opnaði hann með þrist. Emil Karel Einarsson var áberandi hjá Þórsurum og setti hann þriðja þristinn í röð fyrir Þórsara og staðan 19-15. Oddur Rúnar fékk þrjú vítaskot sem komu KR-ingum í 22-15. Martin Hermannsson fékk sína þriðju villu og sat útaf í smá stund. Emil hélt Þórsurum inní leiknum með góðum leik, en þeir Matthías Orri og Þorgeir Blöndal voru einu sem skoruðu fyrir KR það sem eftir lifði af öðrum leikhluta og leiddu 33-23. Matthías Orri var stigahæstur í fyrri hálfleik hjá KR-ingum með 18 stig en næstur kom Martin með 7 stig.
Mynd: Matthías Orri Sigurðarson að taka við bikarnum frá Erlingi Hannessyni stjórnarmanni KKÍ.
Myndina tók Atli Sveinsson

Í þriðja leikhluta skoraði Adam Karl fjögur fyrstu stig KR-inga í síðari hálfleik en KR-ingar misstu boltann og fengu á sig hraðupphlaup, Martin fékk á sig fjórðu villuna og Matthías snéri sig mjög illa og lék ekkert meira í leiknum. Þórsarar með þá Emil og Pálma í fararbroddi minnkuðu muninn í 37-32. Martin Hermannsson steig upp og skoraði næstu níu stig KR-inga og Oddur Rúnar Kristjánsson endaði leikhlutann með þriggjastigakörfu og staðan eftir þrjá leikhluta 48-37. Martin hóf fjórða leikhluta með þrist og KR-ingar komnir í þægilega stöðu. Emil skoraði grimmt fyrir Þór og minnkuðu þeir muninn í 53-43 áður en Oddur skoraði átta stig á stuttum tíma og kláraði leikinn. Lokatölur 65-50.
Mynd: Martin Hermannsson steig upp þegar að Matthías Orri meiddist og var valinn maður leiksins.
Myndina tók Atli Sveinsson
Frábær sigur hjá KR-ingum sem voru að vinna sinn fyrsta bikartitil í fyrsta bikarúrslitaleik og það með því að missa Matthías Orra af velli þegar um fjórtán mínútur voru eftir af leiknum, en liðið steig upp og kláraði leikinn.
Martin Hermannsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 21 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Matthías Orri Sigurðarson skoraði 18 stig á nítján mínútum en hann meiddist illa. Adam Karl Helgason átti mjög góðan leik, reif niður 11 fráköst og spilaði flotta vörn. Oddur Rúnar Kristjánsson skoraði 17 stig og var ásamt Martin sá sem steig upp þegar á reyndi. Aðrir leikmenn stóðu sína vakt og eiga hrós skilið fyrir flottan sigur.
Tölfræði leiksins
Umfjöllun af karfan.is
Hér að neðan er svo myndalbúm með myndum sem Atli Sveinsson tók í Keflavík.
Liðið fyrir leikinn í bolum sem Bæjarnis Bestu Pylsur styrktu liðin sem taka þátt í bikarúrslitum yngriflokkanna.
Myndina tók Atli Sveinsson