Yngri flokka starf körfuknattleiksdeildar KR er komið á fulla ferð eftir sumarfríið og allir flokkar komnir af stað. KR getur státað sig af einu allra besta yngri flokka starfi á landinu undanfarin áratug og er stefnan alltaf að gera betur.
Í körfuboltanum eru árgangarnir aðskildir og því fær hver og einn að njóta sín betur enda hóparnir minni. Eina undantekning eru Byrjendaflokkarnir en þar eru 1. og 2. bekkur saman.
Flokkakerfið okkar virkar á eftirfarandi hátt:
Byrjendaflokkur - 1. og 2. bekkur
Minnibolti 8 ára - 3. bekkur
Minnibolti 9 ára - 4. bekkur
Minnibolti 10 ára - 5. bekkur
Minnibolti 11 ára - 6. bekkur
7. flokkur - 7. bekkur
8. flokkur - 8. bekkur
9. flokkur - 9. bekkur
10. flokkur - 10. bekkur
11. flokkur - 1. ár menntaskóli
Drengjaflokkur - 2. og 3. ár menntaskóli
Unglingaflokkur - 4. ár menntaskóli
Mynd:Vaskur hópur KRinga í verðlaunaafhendingu í Eymundssonmótinu. Við í KR höldum Eymundssonmótið 2. og 3. október í ár og það er eitt af minniboltamótunum þar sem ekki er talið og allir fá verðlaun,
Keppnisfyrirkomulagið í körfuboltanum er þannig að 10 ára og yngri spila í sérstökum Minniboltamótum þar sem fáir eru í hverju liði og því fá allir að spila mikið. Á þeim mótum eru stig ekki talin enda skemmtunin í fyrirrúmi og allir vinna.
Í minnibolta 11 ára bætist svo við Íslandsmót og Reykjarvíkurmót en þau er spiluð á 5 fjölliðamótum yfir veturinn. Í 9. flokki bætist síðan bikarkeppni KKÍ við.
Allir strákar og stelpur mega koma og prófa körfubolta hjá okkur. Allir eru velkomnir!!
Hér til vinstri er svo hægt að skoða heimasíðu hvers flokks en á henni er hægt að finna upplýsingar um þjálfarann, æfingatímanna og þegar líður á veturinn munu fréttir af flokkinum birtast þar.
Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hafa samband
Finnur F. Stefánsson yfirþjálfari
finnsi21@gmail.com s: 822 1441
