Það er retró fílingur á jólasveinum dagsins. Þesir ungu herramenn voru í minnibolta 11 ára drengja þegar þessi mynd var tekin árið 2005. Þeir gerðu sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar um vorið og hafa verið ansi sigursælir síðan.
Strákarnir í 11. flokki gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leiki sína í fyrstu umferð Íslandsmótsins en leikið var íþróttahúsinu Rimaskóla. Andstæðingar liðsins voru ÍR, Fjölnir, Þór Þ./FSu og Njarðvík/Grindavík. Þjálfari liðsins er Finnur Stefánsson.
11 flokkur drengja stóð sig gríðarlega vel í fjölliðamóti A riðils 11 flokks sem haldið var í Smáranum síðustu helgina í janúar. Strákarnir unnu alla sína leiki í þessu þriðja móti vetrarins og virðast til alls líklegir.
Kristófer Acox skoraði 26 stig og Matthías Sigurðarson lék skínandi vel í bakverðinum þegar KR vann sannfærandi sigur á Völsurum í bikarkeppni 11. flokks, miðvikudaginn 20 janúar. Liðið mætir FSu á Selfossi í undanúrslitum.