Minnibolti 11 ára drengja
Fæddir 2000
Æfingatafla 2011-2012
| Dagur |
Tími |
Staður |
| Mánudagar |
17:10-18:00 |
DHL Höllin A-sal |
| Miðvikudagar |
17:10-18:00 |
DHL Höllin A-sal |
| Föstudagar |
14:40-16:20 |
DHL Höllin A-sal |
| Laugardagar |
12:10-13:00 |
DHL Höllin A-sal |
Þjálfari 2011-2012
Finnur Atli Magnússon
Sími: 696-0161
Netfang:
finnuratli@gmail.com
07. desember 2010 | 00:00
Jólasveinar dagsins koma úr röðum minnibolti 11 ára drengja. Stór og öflugur hópur drengja er að æfa í þessum árgangi en þeir eru fæddir á því herrans ári 1999. Strákarnir hafa leikið einstaklega vel í vetur. Liðið sendir tvö A-lið til leiks í Íslandsmótinu og hafa þau bæði unnið alla sína leiki en annað liðið leikur í A-riðli en hitt liðið er komið uppí B-riðil eftir að hafa byrjað í D. Einnig leika strákarnir sem B-lið í 7. flokki og hafa einnig unnið alla sína leiki þar og eru komnir í B-riðil eftir að hafa byrjað í D. Árangurinn er engin tilviljun enda strákarnir gríðarlega duglegir að æfa og mæta vel á æfingar.
21. október 2010 | 21:50
Nóg er að gera hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildarinnar en fyrstu umferðir Íslandsmótanna fara fram um þessa mundir. Alls eru það 7 lið sem etja kappi um helgina auk meistaraflokkana tveggja.
22. mars 2010 | 20:00
Strákarnir í MB 11 ára urðu íslandsmeistarar um helgina annað árið í röð en spilað var í Njarðvík. Strákarnir voru búnir að vinna sér réttinn til að spila úrslitamótið á heimavelli en KR heimilið var bókað alla helgina. Það kom þó ekki á sök því drengirnir unnu alla leiki sína og þar með alla leiki vetrarins og því svo sannarlega verðugir Íslandsmeistarar 2010.
09. desember 2009 | 10:30
MB 11 ára drengja hefur farið af stað með þvílíkum látum í vetur og er flokkurinn ennþá taplaus eftir tvær fyrstu umferðir Íslandsmótsins. Strákarnir urðu Íslandsmeistarar síðasta vetur í MB 10 ára og hafa fylgt því eftir í haust með hvelli. Helgina 21.-22. nóvember fór fram 2. umferð Íslandsmótsins í Garðabæ. Eins og í fyrstu umferðinni unnust allir fjórir leikirnir
