KR-strákarnir í unglingaflokki gerðu góða ferð til Selfoss þegar þeir sigruðu FSu 87-91 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 48-49 KR í vil. Baldur Þór Ragnarsson var stigahæstur með 23 stig en Páll Fannar Helgason smellti niður 22.
Mikil dagskrá hefur verið hjá unglingaflokki í janúarmánuði en við ætlum að skoða síðustu fimm leiki strákanna sem á meðal féllu útúr bikarkeppninni fyrir fyrnasterku Keflavíkurliði. Páll Fannar Helgason hefur leikið stórvel og farið mikinn.
Í dag 1. september eru æfingar hjá öllum yngriflokkum hafnar samkvæmt æfingatöflu sem hægt er að finna hér að neðan og einnig inná síðu hvers flokks fyrir sig.
Alls eru 21 yngriflokkur sem æfa hjá KR körfu og því starfið umfangsmikið.