Pepsi-deildin hefst á sunnudag með heimaleik gegn Stjörnunni. KR-klúbburinn verður að vanda með öflugt starf í kringum heimaleikina. Lesið nánar um það í bréfi nýrrar stjórnar KR-klúbbsins.
KR-klúbburinn stendur fyrir rútuferð fyrir stuðningsmenn KR á leik liðsins gegn Grindavík á fimmtudaginn kemur. Lagt verður af stað kl. 17:45 frá Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Rútan kemur við í KR-heimili um kl. 17.50.