Leikurinn verður fyrsta viðureign bræðranna Teits og Ólafs Þórðarsona og fyrsti leikur Gunnlaugs Jónssonar gegn sínu gamla félagi. Lengi stefndi í að þetta yrði einnig fyrsta viðureign Arnars og Bjarka Gunnlaugssona en því miður verður ekki af því.
Teitur og Ólafur spiluðu aldrei saman með mfl. ÍA. Ólafur er 13 árum yngri og hefur líklega enn verið í 5. flokki þegar Teitur hélt utan í atvinnumennsku árið 1977. Ólafur lék hins vegar undir stjórn Teits hjá Brann og Lyn snemma á síðasta áratug.
Landsliðsferlar bræðranna sköruðust í einum leik. Teitur lék sinn 41. og síðasta A-landsleik haustið 1985 þegar Íslendingar léku við Spánverja í Sevilla. Ólafur var í leikmannahópnum (hafði þegar leikið tvo A-landsleiki) en var ekki skipt inná.
Fyrri leikir KR og ÍA í Deildabikarnum
KR og ÍA hafa leikið fjóra leiki í Deildabikarkeppnni, fyrst árið 1998, þá árið 2002 og tvisvar árið 2003. Hér að neðan eru úrslit og markaskorarar. Við látum einnig lið KR úr fyrsta leiknum fljóta með og það gæti verið næsti liður í spurningaleiknum á spjallsíðu krreykjavík.is að finna út með hvaða félögum leikmennirnir spila á þessu ári.
KR - ÍA 0-0. KR vann 4-3 í vítakeppni. Tungubakkavellir, Mosfellsbæ, 7. maí 1998. Undanúrslit.
Lið KR: Gunnleifur Gunnleifsson - Þormóður Egilsson, Bjarni Óskar Þorsteinsson, Birgir Sigfússon, Þorsteinn Þorsteinsson - Arnar Jón Sigurgeirsson (Björgvin Vilhjálmsson 116.), Sigurður Örn Jónsson, Þórhallur Örn Hinriksson, Björn Jakobsson (Edilon Hreinsson 115.) - Guðmundur Benediktsson, Stefán Gíslason (Reynir Logi Ólafsson 66.).
Þjálfari: Atli Eðvaldsson.
Gul spjöld: Sigurður Örn Jónsson, Arnar Jón Sigurgeirsson. Brottvísun: Sigurður Örn Jónsson (tvö gul) á 111. mínútu.
* Fyrstu sjö spyrnur vítakeppninnar gáfu mark en þá skaut Jóhannes Harðarson framhjá úr fjórðu spyrnu Skagamanna. Þormóður Egilsson skaut síðan í slá en Gunnleifur Gunnleifsson varði síðustu spyrnu ÍA frá Mihajlo Bibercic.
KR - ÍA 2-1 (0-0). Reykjaneshöllin, 17. mars 2002. A riðill.
0-1 Hjörtur Hjartarson (59.), 1-1 Henning Jónasson (79.), 2-1 Magnús Ólafsson
* Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, hélt upp á 39. afmælisdaginn með sigri á Íslandsmeisturunum.
ÍA - KR 2-0 (1-0). Egilhöll, 9. mars 2003. A riðill.
1-0 Grétar Rafn Steinsson (5.), 2-0 Guðjón Heiðar Sveinsson (56.)
* Einar Þór Daníelsson var rekinn af velli á fyrstu mínútu seinni hálfleiks.
ÍA - KR 4-1 (3-1). Akranesvöllur, 4. maí 2003. Undanúrslit.
1-0 Guðjón Heiðar Sveinsson (3.), 2-0 Kári Steinn Reynisson (26.), 2-1 Bjarki Gunnlagusson (32.), 3-1 Hjörtur Hjartarson (38.), 4-1 Hjálmur Dór Hjálmsson (76.)
