20. maí 2005 | 17:40
| Meistarafl. karla
19. heimsókn Framara
Leikurinn verður 19. deildarleikur KR og Fram á KR-velli og hefur ekkert félag heimsótt okkur jafn oft og Framarar.
Fyrsti leikur félaganna á KR-velli fór fram 29. ágúst 1985 og lauk með 1-1 jafntefli. Pétur Ormslev skoraði fyrir Fram í fyrri hálfleik en Ásbjörn Björnsson jafnaði fyrir KR í þeim síðari.
KR-ingar hafa unnið Framara ellefu sinnum á KR-velli, Framarar hafa sigrað fjórum sinnum en þrisvar hafa félögin gert jafntefli. Markatalan er 34-25 KR í hag.
Flest mörk KR-inga gegn Fram á KR-velli: Einar Þór Daníelsson 4, Guðmundur Benediktsson 4 (1 vsp), Andri Sigþórsson 2, Arnar Jón Sigurgeirsson 2, Izudin Daði Dervic 2, Mihajlo Bibercic 2 (1 vsp), Ríkharður Daðason 2, Rúnar Kristinsson 2 (1 vsp), Veigar Páll Gunnarsson.
Flest mörk Framara á KR-velli: Guðmundur Steinsson 2, Kristinn Hafliðason 2, Ríkharður Daðason 2 (1 vsp), Valdimar Kristófersson 2, Þorbjörn Atli Sveinsson 2 (1 vsp).
133. deildarleikur KR og Fram
Leikurinn á sunnudag verður 133. leikur KR og Fram á Íslandsmóti. Engin félög hafa leikið jafn oft í efstu deild. Fyrstu 49 leikir félaganna fóru fram á Melavelli (Melavöllunum tveimur), en frá 1959 til 1985 léku félögin yfirleitt í Laugardalnum, ýmist á Laugardalsvelli, Valbjarnarvelli eða “Hallarflötinni”, þar sem gervigrasvöllur Þróttar er nú.
KR hefur leikið heimaleiki sína á KR-velli frá 1984. Heimaleikurinn við Fram þetta ár fór fram á Valbjarnarvelli og árið 1986 var leikið á Laugardalsvelli.
KR og Fram léku fyrsta leikinn á fyrsta Íslandsmótinu, 28. júní 1912. Pétur Hoffmann Magnússon skoraði fyrir Fram í fyrri hálfleik en Lúðvíg Einarsson jafnaði fyrir KR í þeim síðari.
KR-ingar hafa sigrað í 63 af 132 deildarleikjum félaganna, Framarar í 39 en 30 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 263-195 KR í hag.
Magnús ósigraður á KR-velli
Magnús Gylfason er ósigraður sem þjálfari á KR-velli. KR tapaði engum deildarleikjanna tólf þegar Magnús var aðstoðarþjálfari Luka Kostic árin 1996 og 1997 og hann stjórnaði ÍBV til sigurs árið 2003 og náði markalausu jafntefli í fyrra.
Síðustu tíu deildarleikir KR og Fram á KR-velli
1994 KR - Fram 3-3 (2-2) 15. umferð
1-0 Izudin Daði Dervic (13.), 1-1 Hólmsteinn Jónasson (31.), 2-1 Izudin Daði Dervic (35.), 2-2 Kristinn Hafliðason (44.), 3-2 Tryggvi Guðmundsson (65.), 3-3 Kristinn Hafliðason (82.)
1995 KR - Fram 3-1 (0-1) 3. umferð
0-1 Ríkharður Daðason (vsp 37.), 1-1 Mihajlo Bibercic (vsp 49.), 2-1 Einar Þór Daníelsson (58.), 3-1 Mihajlo Bibercic (73.)
* Ásmundur Haraldsson kom inn í lið KR fyrir Einar Þór Daníelsson og lék síðustu fjórar sekúndurnar.
* Fyrsti leikur Fram undir stjórn Magnúsar Más Jónssonar. Magnús lék með yngri flokkum KR og með meistaraflokki félagsins á árunum 1977-78 og 1982-83.
1997 KR - Fram 4-2 (2-2) 18. umferð
0-1 Þorbjörn Atli Sveinsson (3.), 1-1 Ríkharður Daðason (30.), 2-1 Ríkharður Daðason (36.), 2-2 Þorbjörn Atli Sveinsson (vsp 38.), 3-2 Andri Sigþórsson (63.), 4-2 Andri Sigþórsson (71.)
* Þrír leikmenn KR léku sinn síðasta leik með félaginu en þeir fóru allir til norskra félaga eftir leiktíðina. Brynjar Björn Gunnarsson fór til Vålerenga, Óskar Hrafn Þorvaldsson til Strømsgodset og Ríkharður Daðason til Viking.
1998 KR - Fram 2-0 (2-0) 11. umferð
1-0 Guðmundur Benediktsson (vsp 11.), 2-0 Þorsteinn E. Jónsson (13.)
* Sjötti og síðasti deildarleikur Eiðs Smára Guðjohnsen með KR.
* Bragi Bergmann dæmdi leikinn en þetta var 1000. leikurinn sem hann tók þátt í sem dómari eða aðstoðardómari.
1999 KR - Fram 3-1 (2-0) 7. umferð
1-0 Einar Þór Daníelsson (12.), 2-0 Guðmundur Benediktsson (37.), 2-1 Sævar Pétursson (55.), 3-1 Bjarki Gunnlaugsson (71.)
* Einar Þór Daníelsson var rekinn af velli á 87. mínútu.
2000 KR - Fram 1-2 (1-1) 10. umferð
0-1 Steinar Guðgeirsson (24.), 1-1 Einar Þór Daníelsson (31.), 1-2 Sigurvin Ólafsson (vsp 77.)
* Fjalar Þorgeirsson (Fram) varði vítaspyrnu Andra Sigþórssonar skömmu fyrir leikhlé.
* David Winnie (KR) var rekinn af velli í kjölfar vítaspyrnunnar sem Framarar fengu.
2001 KR - Fram 2-1 (0-1) 17. umferð
0-1 Andri Fannar Ottósson (19.), 1-1 Arnar Jón Sigurgeirsson (49.), 2-1 Arnar Jón Sigurgeirsson (65.)
* Bæði félögin voru í mikilli fallhættu eftir leikinn en báðum tókst að bjarga sér með sigri í lokaumferðinni.
* 400. leikur Þormóðs Egilssonar með meistaraflokki KR.
* Ómar Hákonarson (Fram) var rekinn af velli á 89. mínútu.
2002 KR - Fram 1-0 (1-0) 6. umferð
1-0 Sigurður Ragnar Eyjólfsson (42.)
2003 KR - Fram 3-1 (2-0) 11. umferð
1-0 Veigar Páll Gunnarsson (25.), 2-0 Kristinn Hafliðason (29.), 2-1 Ragnar Árnason (58.), 3-1 Veigar Páll Gunnarsson (85.)
* Kristinn Hafliðason skoraði 300. deildarmark KR á KR-velli.
* Kristinn og Ríkharður Daðason eru einu leikmennirnir sem hafa skorað fyrir bæði félögin á KR-velli.
2004 KR - Fram 3-0 (1-0) 7. umferð
1-0 Arnar Gunnlaugsson (vsp 40.), 2-0 Guðmundur Benediktsson (87.), 3-0 Guðmundur Benediktsson (90.)
* Varamaðurinn Guðmundur Benediktsson skoraði tvisvar á lokamínútunum og í stærsta sigri KR á Fram á KR-velli.
* Varamenn KR höfðu tvisvar áður skorað skorað tvö mörk. Einar Örn Birgisson skoraði tvisvar í 4-1 sigri á Víkingi árið 1999 og Sigurður Ragnar Eyjólfsson setti tvö mörk í 3-2 sigri á Akranesi árið 2003. Sigurður lék í 68 mínútur, Einar Örn í 33 mínútur en Guðmundur lék aðeins í 23 mínútur.
* Jökull Elísabetarson lék sinn 100. leik með meistaraflokki KR.
Liðsmenn beggja félaga
Tveir í leikmannahópi beggja félaga hafa leikið með KR og Fram í efstu deild. Ágúst Þór Gylfason og Sigurvin Ólafsson leika með KR og Ríkharður Daðason og Þórhallur Dan Jóhannsson með Fram.
Nokkrir aðrir hafa leikið með báðum félögum í efstu deild: Árni Ingi Pjetursson, Baldvin Baldvinsson, sem er eini leikmaðurinn sem hefur orðið Íslandsmeistari með báðum félögum, Baldvin Elíasson, Egill Atlason, Hilmar Björnsson, Jón Oddsson, Kristinn Hafliðason og Ragnar Margeirsson.
Hólmbert Friðjónsson er sá eini sem hefur þjálfað bæði félög í efstu deild.