Skráning og greiðsla æfingagjalda Knattspyrnudeildar KR
Knattspyrnuárið 2010 - Skráningarblað og greiðsla æfingagjalda
Smellið hér til að sækja skráningarblaðið.
Fyllið út wordskjalið, vistið á tölvunni hjá ykkur og sendið síðan á netfangið
martha@kr.is.
Foreldrar iðkenda geta ráðstafað af frístundakortinu allt að kr. 25.000 á árinu 2010.
Athugið að við hjá KR þurfum að skrá barnið fyrst inn í Rafrænu Reykjavík áður en þið getið farið þar inn og ráðstafað styrknum.
Skráningarblað knattspyrnudeildar þarf að skilast til skrifstofu KR svo skráning geti farið fram.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa KR í símum 510-5314 og 510-5310 og í netfangi knattspyrna@kr.is.
Almennt um Frístundakort Reykjavíkurborgar
-
Meginmarkmið Frístundakortsins er að öll börn og unglingar á aldrinum 6-18 ára (miðað við fæðingarár) með lögheimili í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
-
Með Frístundakortinu má greiða að hluta eða að öllu leyti fyrir íþrótta-, lista- og æskulýðs-starfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum.
-
Hverju ári verður skipt í þrjú tímabil, haustönn, vorönn og sumarönn. Heimilt verður að nýta styrkina til greiðslu allt að þriggja greina á hverju tímabili.
-
Ekki verður um beingreiðslur til foreldra að ræða heldur fá foreldrar rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til greiðslu á hluta þátttöku- og æfingagjalda.
-
Upphæð ráðstöfunarstyrks til barna á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Reykjavík er:
Frá 1. janúar 2010 kr. 25.000
Forsenda þess að hægt sé að ráðstafa styrknum er að búið sé að skrá barn í tómstund hjá félagi sem er aðili að Frístundakortinu og að félagið sé búið að skrá barnið í Frístundakorts-kerfið á Rafrænu Reykjavík.
-
Athugið að ekki er hægt að fá endurgreidda þá upphæð sem búið er að ráðstafa til félags.
-
Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast sendu þær á fristundakort@itr.is eða hafðu samband við símaver Reykjavíkurborgar í síma 411-1111. Einnig er hægt að fá aðstoð hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar hafi foreldrar ekki aðgang að tölvu.
Leiðbeiningar um ráðstöfun
-
Farðu inná vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Farðu í UMSÓKNIR, Rafræn Reykjavík og svo í INNSKRÁ.
Ef þú ert að fara inn í fyrsta skipti skaltu fara í NÝSKRÁ.
-
Þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík skaltu velja flipann FRÍSTUNDAKORT.
-
Veldu RÁÐSTAFA STYRK.
-
Veldu nafn barns af fellilista.
-
Þá birtist námskeið sem barnið er skráð á og heildarupphæð námskeiðs.
-
Skrifaðu upphæð ráðstöfunarstyrks í kassa fyrir aftan námskeið og staðfestu ráðstöfunina.
-
Ráðstöfunarupphæð birtist hjá félagi, sem lækkar reikning iðkandans sem nemur ráðstöfunarupphæð.
-
Ef upphæð námskeiðs er hærri en þú ráðstafar, þarft þú að greiða mismuninn til félagsins.
-
Ekki er hægt að ráðstafa hærri upphæð til félags en námskeiðið kostar.