Foreldraráð starfar í hverjum árgangi. Helstu verkefni þess er að skipuleggja keppnisferðir í samráði við þjálfara og standa að fjáröflunum til að fjármagna þær. Ennfremur vinnur foreldraráðið að velferð barnanna í hvívetna. Foreldraráð er tengiliður foreldra við þjálfara og félagið. Reglulega eru haldnir fundir foreldraráða og tekur þjálfari þátt í þeim eftir atvikum.
Hver flokkur á einn fulltrúa í uppeldisnefnd sem kemur úr hópi foreldra.
Til að halda úti öflugri vefsíðu þurfa margir að leggja hönd á póginn. Eins og máltækið segir, margar hendur vinna létt verk. Eitt foreldri úr hverjum flokki hefur umsjón með vefsíðu síns flokks og sinnir þar með starfi vefritara.
Foreldrastarfið - Upplýsingar og gagnabanki
Foreldraráð starfar í hverjum árgangi. Það samanstendur af a.m.k. 4 foreldrum.
Einn fulltrúi úr hópi foreldra hvers flokks situr í uppeldisnefnd knattspyrnudeildar.
Vefritarar - Upplýsingar og gagnabanki
Til að halda úti öflugri vefsíðu þurfa margir að leggja hönd á póginn. Eins og máltækið segir, margar hendur vinna létt verk. Foreldrar eru hvattir til að senda sínum ritara efni og myndir til að gera síðuna líflega og skemmtilega. Eitt foreldri úr hverjum flokki hefur umsjón með vefsíðu síns flokks og sinnir þar með starfi vefritara.
Vefritarar yngri flokka sinna uppfærslu á síðu síns flokks. Það felst í því að skrifa fréttir þegar eitthvað markvert er að gerast og setja inn myndir úr starfinu t.d. frá mótum og þessháttar. Allir foreldrar eru hvattir til að vera virkir í því að senda vefritaranum fréttir og myndir til að síðan geti verið skemmtileg og lifandi. Smellið á meira til að sjá leiðbeiningar.