Almennar upplýsingar um
Frístundakortið
- Meginmarkmið Frístundakortsins er að öll börn og unglingar á aldrinum 6-18 ára (miðað við fæðingarár) með lögheimili í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
- Með Frístundakortinu má greiða að hluta eða að öllu leyti fyrir íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum.
- Hverju ári verður skipt í þrjú tímabil, haustönn, vorönn og sumarönn. Heimilt verður að nýta styrkina til greiðslu allt að þriggja greina á hverju tímabili.
- Ekki verður um beingreiðslur til foreldra að ræða heldur fá foreldrar rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til greiðslu á hluta þátttöku- og æfingagjalda.
- Upphæð ráðstöfunarstyrks til barna á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Reykjavík er:
1. janúar - 31. desember 2010 kr. 25.000
Forsenda þess að hægt sé að ráðstafa styrknum er að búið sé að skrá barn í tómstund hjá félagi sem er aðili að Frístundakortinu og að félagið sé búið að skrá barnið í Frístundakortskerfið á Rafrænu Reykjavík.
- Athugið að ekki er hægt að fá endurgreidda þá upphæð sem búið er að ráðstafa til félags.
- Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast sendu þær á fristundakort@itr.is eða hafðu samband við símaver Reykjavíkurborgar í síma 411-1111. Einnig er hægt að fá aðstoð hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar hafi foreldrar ekki aðgang að tölvu.

KR aðili að Frístundakortinu
KR - Knattspyrnufélag Reykjavíkur er að sjálfsögðu aðili að Frístundakortinu. Frístundakortið er hægt að nota til að greiða æfingagjöld hjá öllum deildum KR og eru þær þessar:
Upplýsingar um æfingatíma og æfingagjöld má finna á heimasíðum deildanna. Hægt er að fara inná heimasíður deildanna með því að smella á nöfn þeirra hér að ofan.
Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast sendu þær á kr@kr.is eða hafðu samband við skrifstofu KR í símum 510-5310 eða 510-5312.

Hvernig get ég ráðstafað styrk
fyrir barnið mitt?
- Farðu inná vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Farðu í UMSÓKNIR, Rafræn Reykjavík og svo í INNSKRÁ.
Ef þú ert að fara inn í fyrsta skipti skaltu fara í NÝSKRÁ.
- Þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík skaltu velja flipann FRÍSTUNDAKORT.
- Veldu RÁÐSTAFA STYRK.
- Veldu nafn barns af fellilista.
- Þá birtist námskeið sem barnið er skráð á og heildarupphæð námskeiðs.
- Skrifaðu upphæð ráðstöfunarstyrks í kassa fyrir aftan námskeið og staðfestu ráðstöfunina.
- Ráðstöfunarupphæð birtist hjá félagi, sem lækkar reikning iðkandans sem nemur ráðstöfunarupphæð.
- Ef upphæð námskeiðs er hærri en þú ráðstafar, þarft þú að greiða mismuninn til félagsins.
- Ekki er hægt að ráðstafa hærri upphæð til félags en námskeiðið kostar.