Íþróttaskóli KR
Íþróttaskóli KR vor 2012
fyrir 3 til 6 ára börn
hefst laugardaginn 14. janúar 2012.

Kennt er í íþróttahúsi KR, B-sal.

Aldursskipting:
3 - 4 ára eru frá kl: 10:00-11:00
5 - 6 ára eru frá kl: 11:00-12:00

Skráning fer fram í gegnum skráningakerfi KR á www.kr.is, veljið þar "Skráning og greiðsla æfingagjalda" eða slóðina https://kr.felog.is/.  Leiðbeiningar má finna hér:  /kr/upload/files/kr/kr-nori-leidbeiningar-allt.pdf

Byrjað verður að taka við skráningum föstudaginn 6. janúar.
 
Námskeiðið er í 14 skipti og kostar 10.500 krónur. Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er að finna í skráningakerfinu.  Hægt er að mæta eftir að námskeiðið byrjar.  Greitt er þá fyrir hvern tíma sem mætt er í, tíminn er á 750 krónur.  Athugið að þá þarf að hafa samband við skrifstofu KR með því að senda tölvupóst á skrifstofa@kr.is.  Systkinaafsláttur er 10% og reiknast af báðum námskeiðsgjöldunum.

Hjá íþróttaskóla KR fer fram áhugaverð dagskrá þar sem haft er að leiðarljósi að efla skyn og hreyfiþroska barnanna ásamt því að kenna þeim að vinna með öðrum, umgangast aðra og taka tillit hvert til annars.

Aðalleiðbeinandi er Hlynur Valsson, íþróttakennari.

Nánari upplýsingar og aðstoð veitir skrifstofa KR í síma 510-5310.


 
                 Sumarstarfið   2011                            
                                                                                         
Undanfarin sumur hafa deildir KR haldið námskeið yfir sumartímann.  Námskeiðin sem hafa verið í boði eru knattspyrnuskóli, körfuboltaskóli og sundnámskeið.  Nánari upplýsingar um námskeið sumarsins 2011 birtast þegar nær dregur.




Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is