Æfingaáætlun fyrir alla aldursflokka veturinn 2011-2012:
8 ára og yngri
Haustæfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum. Þegar snjórinn er kominn eru æfingar á laugardögum og sunnudögum frá kl. 10-12 og ein æfing í miðri viku kl. 18-20.
Þjálfari Ása Sandholt asa03@ru.is sem er mjög reyndur þjálfari enda búin að vera hjá okkur í mörg ár.
9-12 ára
9-10 ára Haustæfingar á þriðjudögum og fimmtudögum. 11-12 ára Haustæfingar á þriðjudögum, miðvikurdögum og fimmtudögum .Þegar snjórinn er kominn, eru æfingar á laugardögum og sunnudögum frá 10-12. Virka daga eru settar upp æfingar alla daga en eins og allir vita er ekki hægt að stóla á opnun alla daga. Þjálfari, hinn margfrægi Sigurður Nikulásson sigginik@hotmail.com sem er búinn að vera þjálfari hjá Blikum og Fram í mörg ár.
13-14 ára
Í vetur verður skíðadeild KR í samstarfi við skíðadeildir Breiðabliks og Fram um þjálfun,eins og í fyrra og árin tvö þar á undan ;) Þjálfari þessa aldursflokks er Egill Ingi Jónsson egill@myndval.is .
15 ára og eldri
Síðastliðin vetur tóku öll Reykjavíkurfélögin sig saman og stofnuðu Skíðalið Reykjavíkur og Breiðabliks. Þetta samstarf hefur gefist mjög vel. Reykvíkingar urðu Bikarmeistarar.
Æfingar úti á landi:
Þegar skíðasvæði úti á landi opna er stefnt á æfingaferðir, sérstaklega til Akureyrar, Dalvíkur, Siglufjarðar og á Tindasól að því gefnu að skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins verði lokuð. Hver ferð verður skipulögð sjálfstætt og munu þjálfarar upplýsa æfingakrakka í hverjum flokki hvort og hvenær slíkar ferðir verða farnar.
