Söngbókin

allirsemeinn 

hlusta á lagið

Við erum KR

Lag og texti: Bubbi Morthens

 

Við stöndum saman allir sem einn
uppgjöf þekkir enginn hér.
Við eru harðir allir sem einn
öflug liðsheild sem fórnar sér

Við erum KR - KR - og berum höfuðið hátt.

 

Við erum svartir, við erum hvítir
enginn getur stöðvað oss.
Við eigum viljann, við eigum úthald
við eigum styrk á við hvaða foss.

Við erum KR - KR - og berum höfuðið hátt.

 

Mótlæti er til að sigrast á
sameinaðir við sigrum þá.
Við þekkjum bæði gleði og tár
titillinn er okkar í ár.

 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Ýmsir - Allir sem einn (1994)

Ýmsir - KR platan (2000)

Ýmsir - Alltaf í boltanum (2003)


ellyvilhjalms

Hlusta á Ellý syngja lagið

 

Heyr mína bæn  

Höfundur lags : Nicola Salerno

Höfundur texta : Ólafur Gaukur Þórhallsson 

Heyr mína bæn, mildasti blær,

berðu kveðju, mína yfir höf,

syngdu honum, saknaðarljóð.

Vanga hans blítt, vermir þú sólmjúkum vörum,

kysstu hans brá, ástarorð hvíslar mér frá.

Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóðalag,

flytjið honum, í yndælum óði, ástarljóð mitt.

 

Heyr mína bæn, bára við strönd,

blítt þú vaggar, honum við barm,

þar til svefninn, sígur á brá.

Draumheimi í, dveljum við þá, daga langa,

saman tvö ein, heyr mínar bænir, og þrár

Syngið þið fuglar, ykkar fegursta ljóðalag,

flytjið honum, í yndælum óði, ástarljóð mitt.

 

 

Annað erindið endurtekið

 

 

Árið 1964 vann Gigliola Cinquetti Eurovision með laginu Non Ho L'Eta.

Ellý Vilhjálms söng þetta lag á íslensku undir heitinu Heyr mína bæn



 


Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is