Sunddeild KR
Sími: 690 6500
Reikningsnúmer:
0101-26-94700
Kennitala: 661191-1209
Innan Sunddeildar KR eru starfræktir 6 hópar sundmanna og er hópunum skipt í fleiri einingar eftir stærð hópanna. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast nafnalista sundmanna eftir hópum.
A hópur HÉR, B hópur HÉR, C hópur HÉR, D hópur HÉR, Sundskóli HÉR
Liðsuppbygging og hópaskipulag
Æfingakerfi okkar er hannað sem framþróun á milli hópa. Þessir mismunandi hópar henta sundmönnum á svipuðum aldri með svipaða getu í að byggja sig upp saman. Þátttaka í hverjum hópi er bæði ögrandi og skemmtileg.
Lið okkar skiptist upp í fimm hópa:
Reglur um flutning á milli hópa
Við flutning á milli hópa taka þjálfarar mið af aldri, mætingu og ástundun, og getu hvers einstaklings, til að tryggja framþróun hans í sundíþróttinni.
A hópur
A hópurinn er í afreks- og aldursflokkaþjálfun. Þar eru krakkar 13 ára og eldri og synda þeir 6 - 9 sinnum í viku auk styrktarþjálfunar og teygjuæfinga. Sundmennirnir taka þátt i fjölmörgum motum innlands ár hvert og sumir fara erlendis á sundmót eða til æfinga.
Þjálfarar hópsins eru Guðmundur Hafþórsson
B hópur
B hópurinn er í aldursflokkaþjálfun. Krakkarnir í B hópnum eru á aldrinum 10-14 ára og æfa 6 sinnum í viku. Sundmenirnir taka þátt í fjölmörgum mótum ár hvert auk þess farið er i æfingabuðir.
Þjálfarar hópsins eru Kristján Jóhannesson.
C hópar (Hvítir og svartir)
C hópar eru fyrir yngra sundfólkið. 8 - 13 ára. Á æfingum hópsins eru farið nánar í sundtækni og um leið er unnið í æfingum sem auka þol, liðleika, kraft og almenna hreyfifærni. Sundmenn C hópa taka þátt i 5 - 7 sundmotum á timabilinu auk þess sem farið er i tvær æfingaferðir yfir helgi. Fræðslu- og videokvöld er haldið einu sinni i hverjum mánuði Hópurinn æfir 4 sinnum i viku frá 1 sept til 15. júni ár hvert.
Þjálfari C hópanna eru Hólmgeir Reynisson
D hópar
D hóparnir eru hópar fyrir yngra sundfólkið, 7 - 9 ára . Á æfingum þeirra eru farið nánar í sundtækni og um leið er unnið í æfingum sem auka þol, liðleika, kraft og almenna hreyfifærni. Hóparnir æfa 3 - 4 sinnum i viku. Æfingar hefjast 1. sept og þeim lýkur 1 júli ár hvert. Sundmenn D hópa taka þátt i 3 - 5 mótum á timabilinu auk þess sem farið er i tvær æfinga- og skemtiferðir yfir veturinn
Þjálfarar D hópa í Vesturbæjarlaug er Eiríkur Þórir Baldursson og Halla Helga Jóhannesdóttir.
Þjálfari D hópa í Neslaug er Hólmgeir Reynisson.
Þjálfari D hóps í Sundhöllinni er Halldór Kristiansen.
Sundskóli KR
E hópar eru byrjendahópar fyrir 4-8 ára krakka. Æfingar E hópanna fara fram innanhúss í Austurbæjarskóla og Sundhölliinni við Barónsstíg og er stærð hópanna stillt í hóf. Í þessum hópum eru grunnhreyfingar sundsins kenndar og ýmsar æfingar kynntar til þess að venja krakkana við vatn, reglulega hreyfingu og góð sundtök.
Aðalþjálfarar i Austurbæjarskóla eru Símon Geir Þórsteinnson íþróttafræðingur og Helga Valgerður Gunnarsdóttir. Halldor Kristiansen sér um kennsluna í Sundhöllinni.
Garpar
Garpahópurinn er fyrir sundáhugmenn sem vilja halda sér í formi í skemmtilegum félagsskap. Æft er tvisvar i viku i sundlaug Vesturbæjar. Í hópnum eru um 20 manns á aldrinum 25 - 55+ ára. Hver æfing er um ein kl.st og fara æfingar fram i sundlaug Vesturbæjar. Æfingar henta öllum einstaklingum og er ekki skilyrði að hafa verið sundmaður i "fyrra lífi"
Þjálfari hópsins er Eiríkur Þórir Baldursson auk þess sem gestakennarar lita einnig við á æfingar.
Æfingar verða á eftirtöldum timum næsta vetur. laugartimar.
Manudaga kl. 19.45.00 - 20.45
Miðvikudaga 19.45 - 20.45
Nýir Garpar eru velkomnir i hópinn
Frekari upplysingar veitir Jóhannes á sund@kr.is