Holl ráð til foreldra
- Verið virkir félagar i starfi deildarinnar og nýtið ykkur það að geta stuðlað að góðu uppeldisumhverfi fyrir börnin ykkar.
- Ræðið reglulega við þjálfara og stjórn sunddeildarinnar.
- Íhugið vel að leggja góðu starfi lið og taka þátt í stjórnarstörfum sunddeildarinnar.
- Haldið ykkur upplýstum um starf deildarinnar með því að lesa vel fréttabréf og tölvubréf í tengslum við starfið og heimsækið heimasíðu félagsins reglulega.
- Leggið mikið upp úr stundvísi sundmanna, á æfingar og sundmót.
- Kynnið ykkur vel hvað telst góð sundiðkun og hvaða reglur gilda.
- Reynið að mæta á eins mörg sundmót og kostur er.
- Skilið inn skráningarblöðum og borgið félagsgjöld tímanlega.
- Látið þjálfara um að þjálfa, þeir eru sérfræðingarnir og vita hvað sundmönnum og liðinu er fyrir bestu í því sem viðkemur sundíþróttinni.
- Komið með ábendingar og spurningar eftir æfingar. Forðist að trufla þjálfara á meðan æfingu stendur, svo hann geti einbeitt sér að því að nýta æfingarnar vel.
- Takið þátt í dómaranámskeiðum hjá SSÍ og verið virk á sundmótum.