kr

Sundfólk

 

Góður sundmaður

  • Setur sér markmið og leggur sig allan fram við að ná árangri. 
  • Leggur ávallt áherslu á íþróttalega framkomu. 
  • Hlustar ávallt vel á þjálfara og fylgir fyrirmælum hans. 
  • Ber virðingu fyrir þjálfara, liðsfélögum og þeirri aðstöðu sem hann hefur afnot af, á æfingum. 
  • Nýtur þess að stunda sund og fá fræðslu um árangursríka þjálfun og almenna góða. 
  • Tekur virkan þátt í dagskrá sunddeildarinnar og stuðlar að því að gera deildina að öflugu félagi. sem hefur jákvæða ímynd, bæði í sínu innra- og ytra umhverfi. 
  • Hvetur aðra liðsfélaga til dáða og hindrar ekki framgang þeirra á æfingum né annars staðar.

Æfingareglur

Sundmaður á:

  • Alltaf að heilsa með handabandi þegar komið er á æfingu og kveðja að æfingu lokinni. 
  • Vera kurteis við starfsfólk laugar, þjálfara og sundfélaga.
  • “Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig” 
  • Ganga vel um þá aðstöðu sem er í boði hverju sinni. 
  • Mæta stundvíslega 10-15 mínútur fyrir æfingu. 
  • Gera lista yfir það sem á að vera í æfingatösku og hafa með:
  • Sundföt, sundgleraugu, auka sundgleraugu, sundhettu, blöðkur, kork, fótakork,
    vatnsbrúsa, handklæði og stuttermabol. 
  • Fara í sturtu, koma (blautur) í stuttermabol inn að laug, 10 mínútum fyrir æfingu, með allt meðferðis. 
  • Hafa með sér smá nesti til að borða eftir æfingu.

Mæting á æfingar og sundmót
Til að tryggja sér þátttöku á sundmeistaramótum og á alþjóðlegum sundmótum þarf að uppfylla lágmarksmætingu á sundæfingar. Yngri sundmenn deildarinnar keppa að jafnaði á 2 - 6 sundmótum yfir árið. Nauðsynlegt er að tilkynna þjálfara tímanlega ef sundmaður getur ekki mætt til keppni sem hann er skráður í.

 

Það sem hafa ber í huga fyrir sundmót
Hafa þarf með sér sundföt fyrir daginn (þ.e. jafn mörg og sundin eru ásamt upphitun), sundhettu, sundgleraugu (auka sundgleraugu), tvö til þrjú, handklæði, KR-gallann, sokka og skó. Ef keppt er í útilaug þarf að hafa með sér auka peysu, trefil, húfu og vettlinga. ÁRÍÐANDI er að ganga jafnóðum frá öllum fatnaði í tösku, milli greina og að keppni lokinni, þar sem það eru oft tugir sundmanna í búningsklefunum. Einnig er gott að hafa allan fatnað merktan (einnig sundfatnað og gleraugu). Sund er hreyfing þar sem margir vöðvahópar eru notaðir samtímis. Ef líkaminn er ekki heitur er blóðrásin og hjartað ekki tilbúið í átökin, vöðvarnir verða súrefnislausir og stífna upp, þá geta komið upp öndunarerfiðleikar og keppandinn gefist upp. Þetta er erfið reynsla fyrir byrjanda. Sundmót byrja oftast snemma morguns og eru kaflaskipt. Áríðandi er að vakna minnst klukkutíma áður en lagt er af stað á sundmót og borða góðan morgunverð. Hafa síðan með sér nesti, t.d. samlokur og ávexti og eitthvað hollt að drekka. Allur flýtir að morgni dags skapar spennu sem erfitt er að eyða.
Sundmót fara þannig fram:
Sundmaður á að mæta strax og komið er í hús til þjálfara síns (það geta verið ýmsar upplýsingar sem hann þarf að koma til sundmanna). Sundmót byrja alltaf með upphitun fyrir sjálft mótið, tekur hún eina til eina og hálfa klukkustund. Fyrir þennan hluta á sundmaður að hafa með sér sundföt og allan þann búnað sem notaður er á æfingum. Eftir upphitun fer sundmaðurinn í heita sturtu, þurrkar sér og fer í keppnis sundfatnað og þann fatnað sem heldur honum heitum þar til kemur að þeirri grein sem keppa á í.
Eftir hverja grein er komið BEINT til þjálfara.
Keppandi er allan tíman hjá félögum sínum og þjálfara. Liðsandi og það að styðja, og hvetja hvert annað skiptir miklu máli. Foreldrum er ætlaður annar staður til að fylgjast með keppni.

 

Reglur fyrir sundmót
Sundmaður á að:

  • Fara snemma að sofa kvöldið fyrir keppni. 
  • Vakna snemma að morgni keppnisdags og borða morgunmat, þó svo að keppni sé eftir hádegi. 
  • Mæta í sundlaug í KR-galla. 
  • Heilsa þjálfara með handabandi um leið og komið er í hús. 
  • Mæta 10 mínútum fyrir ákveðinn upphitunartíma. 
  • Hafa allan útbúnað meðferðis. Gott er að hafa lista yfir það sem á að vera í keppnistöskunni
    og fara yfir áður en lagt er af stað á keppni og þegar keppni er lokið.

Það sem á að vera í tösku:
Æfingasundföt, keppnissundföt, sundgleraugu, auka sundgleraugu, sundhetta, handklæði,
galli, sokkar og skór, vatnsbrúsi, nesti og eitthvað að drekka.


Ganga vel um svæðið sem keppendur eru á. 


Sundmenn eiga að vera alla keppnina með félögum sínum, foreldrum er ætlað annað svæði til
að horfa á keppni.

Hafa með GÓÐA SKAPIÐ og LIÐSANDANN.

Leita

Vefur Sunddeildar
Google

 

Mundmenn SDKR nov 2008

Sundmenn KR nóv 2008

Keppnislið og þjálfarar KR á ÍM 25 2008

 


Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til sund@kr.is