Sunddeild KR

Saga Sunddeildarinnar:
Sunddeild KR var stofnuð í maí 1923.
Sunddeild KR innir af hendi mikið og gott uppeldisstarf og til viðbótar við sundiðkun leggur deildin ríka áherslu á gott félagslíf, almennt heilbrigði og vellíðan iðkenda. Í dag eru um 220 sundmenn við æfingar hjá Sunddeildinni. Æfingar fara fram í 14 æfingahopum undir handleiðslu 14 þjálfara. Sunddeild KR er önnur stærsta deild innan KR.
Sunddeild KR fékk viðurkenningu ISI 25 janúar 2006 sem Fyrirmyndafélag ÍSÍ
Þetta er gæðastimpill sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands gefur íþróttafélögum sem lagt hafa fram skjalfest stefnumið og lýsingu á starfinu. Á þessari síðu og víðs vegar um vefinn eru upplýsingar sem leggja grunn að fyrirmyndarfélagi.
Deildin er reyklaus; enginn sundmaður, þjálfari né stjórnarmaður reykir.
Markmið sunddeildar KR eru:
Að bjóða úrvals sundkennslu og æfingar með afreksstefnu að leiðarljósi og að efla þannig sundiðkun og góðar lífsvenjur í Reykjavík. Sunddeildin stuðlar að útbreiðslu og uppbyggingu á sundíþróttinni á starfssvæði sínu.
Sunddeild KR leggur sig fram við að bjóða faglega þjálfun og tæknilegar leiðbeiningar sem henta hverjum einstaklingi. Sunddeildin hefur á að skipa úrvals þjálfurum, sem hafa langa reynslu af því að þjálfa sund fyrir alla aldurshópa. Hóparnir eru nokkrir og eru aðlagaðir að sundiðkendum þannig að þeir byggi upp sjálfstraust og njóti nægilegrar ögrunar til árangurs. Sundíþróttin er jákvætt og gott þjálfunarform, þar sem lítil hætta er á meiðslum. Ævilangur ávinningur er af iðkun hennar og hún byggir upp jákvæða sjálfsímynd og stuðlar að bættum sjálfsaga.
Sunddeildin hefur það að markmiði að efla félagslega færni iðkenda og byggja upp aga. Sem hluti af rekstri sunddeildar er að bjóða upp á fyrirlestra um sundiðkun, hollar lífsvenjur og heilbrigt líf.
Umhverfisstefna:
Sunddeildin hvetur til umhverfisvæns lífs. Þetta er gert m.a. með því að sameinast í bíla að og frá æfinga- og keppnisstöðum, bjóða upp á þjálfun sem næst heimili (hverfalaugum) til að iðkendur geti gengið að og frá æfingum, safna dósum og flöskum sem fjáröflun, hvetja iðkendur til að nota sturtur sparlega. Einnig er brýnt fyrir öllum að ganga vel um, setja sorp í viðkomandi ílát og ganga ætíð frá öllum vistaverum í því ástandi sem við óskum eftir að taka við þeim. Það er stefnan að setja sem flestar upplýsingar á heima síðu deildarinnar og senda netpóst í stað þess að prenta á pappír.
Vímuvarnarstefna:
1. Forvarnagildi íþrótta
Íþróttahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í vímuvörnum. Rannsóknir á högum barna og ungmenna sýna að þeim ungmennum reiðir betur af og neyta síður vímuefna sem eru virk í íþróttastarfi. Einnig sýna rannsóknir að neysla vímuefna og tóbaks hafa mjög skaðleg áhrif á árangur í íþróttum. Deildin vill efla enn frekar vímuvarnagildi íþrótta með því að taka skýra afstöðu gegn neyslu í tengslum við íþróttir. Í þessari stefnuyfirlýsingu er talað um vímuefnaneyslu og er þá átt við neyslu áfengis og annarra vímuefna.
2. Neysla tóbaks og vímuefna
Sunddeild KR er andvígt allri neyslu tóbaks og vímuefna allra iðkenda og annarra félagsmanna sem koma að íþróttastarfi á vegum félagsins. Öll neysla tóbaks og vímuefna er bönnuð í tengslum við æfingar og keppni á vegum félagsins. Sunddeild KR er reyklaust félag sem á jafnt við um iðkendur, þjálfara og stjórnarmenn.
3. Viðbrögð félagsins við neyslu iðkenda.
Sunddeild KR mun bregðast sérstaklega við allri neyslu iðkenda undir 18 ára aldri og foreldrar verða undantekningarlaust upplýstir um slíka neyslu. Þegar um sjálfráða einstaklinga er að ræða (eldri en 18) mun sunddeild KR bregðast við neyslu þeirra á vímuefnum og tóbaki þar sem reglur félagsins eru brotnar (sbr. lið 2) og við neyslu sem hefur áhrif á ástundun, frammistöðu og ímynd félagsins. Viðbrögð félagsins við brot á reglum þessum verða í formi tilmæla og ábendinga. Skili slík viðbrögð ekki árangri getur komið til tímabundins banns frá æfingum og/eða keppni. Viðbrögð félagsins munu samt ávallt mótast af vilja til að aðstoða iðkandann við að laga sig að reglum og að hann haldi áfram að starfa innan félagsins.
4. Hlutverk þjálfara
Þjálfarar skulu vinna eftir vímuvarnastefnu félagsins, þar með talið að bregðast við vímuefnaneyslu iðkenda á viðeigandi hátt. Sunddeild KR mun sjá þjálfurum fyrir fræðslu um áhrif vímuefnaneyslu á árangur í íþróttum sem þjálfarar síðan miðla áfram til iðkenda. Þjálfarar skulu framfylgja stefnu félagsins varðandi samstarf við foreldra og aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga.
5. Samstarf við foreldra
Sunddeild KR mun upplýsa foreldra um stefnu félagsins í vímuvörnum.
Jafnréttisstefna:
Sunddeildin vill stuðla að jafnrétti bæði milli kynja og aldurshópa. Stelpur og strákar eru saman á æfingum og fá sömu þjálfun. Ekki er gerður neinn greinarmunur á milli kynja við þjálfun eða styrkúthlutun. Að jafnaði er þess gætt að farastjórar séu af báðum kynjum á æfinga og keppnisferðum. Stuðst er við jafnréttisreglur ÍSÍ og SSÍ.
Bikarlið 2008