kr

Æfingahópar Sunddeildar KR

 

Liðsuppbygging og hópaskipulag
Æfingakerfi okkar er hannað sem framþróun á milli hópa. Þessir mismunandi hópar henta sundmönnum á svipuðum aldri með svipaða getu í að byggja sig upp saman. Þátttaka í hverjum hópi er bæði ögrandi og skemmtileg.

 

Lið okkar skiptist upp í fimm hópa:

  • A - hópur
  • B - hópur
  • C - hópur
  • D - hópur
  • E  - hópur
  • Sundskóli KR
  • Garpahópur


Reglur um flutning á milli hópa
Við flutning á milli hópa taka þjálfarar mið af aldri, mætingu og ástundun, og getu hvers einstaklings, til að tryggja framþróun hans í sundíþróttinni.
 


A hópur
A hópurinn er í afreks- og aldursflokkaþjálfun. Þar eru krakkar 12 ára og eldri og synda þeir 6 - 9 sinnum í viku auk styrktarþjálfunar og teygjuæfinga. Sundmennirnir taka þátt i fjölmörgum motum innlands ár hvert og sumir fara erlendis á sundmót eða til æfinga.


Þjálfari hópsins er Jón Oddur Sigurðsson 

 

[nánar um A hópinn]


B hópur
B hópurinn er í aldursflokkaþjálfun. Krakkarnir í B hópnum eru á aldrinum 10-14 ára og æfa 6 sinnum í viku. Sundmenirnir taka þátt í fjölmörgum mótum ár hvert auk þess farið er i æfingabuðir.


Þjálfarar hópsins eru Jón Oddur Sigurðsson og Páll janus Þorðarson 

 

[nánar um B hópinn]


C hópar
C hópur er hópur fyrir yngra sundfólkið.  8 - 13 ára. Á æfingum hópsins eru farið nánar í sundtækni og um leið er unnið í æfingum sem auka þol, liðleika, kraft og almenna hreyfifærni. Sundmenn C hópa taka þátt i 5 - 7 sundmotum á timabilinu auk þess sem farið er i tvær æfingaferðir yfir helgi. Fræðslu- og videokvöld er haldið einu sinni i hverjum mánuði Hópurinn æfir 4 sinnum i viku frá 1 sept  til 15. júni ár hvert.


Þjálfari C hvitir er Kristján Jóhannesson

 

Þjálfari C svartir Eirikur Þórir Baldursson

 

[nánar um C hópana] 


D hópar
D hóparnir eru hópar fyrir yngra sundfólkið, 7 - 9 ára . Á æfingum þeirra eru farið nánar í sundtækni og um leið er unnið í æfingum sem auka þol, liðleika, kraft og almenna hreyfifærni. Hóparnir æfa 3 - 4 sinnum i viku. Æfingar hefjast 1. sept og þeim lýkur 1 júli ár hvert. Sundmenn D hópa taka þátt i 3 - 5 mótum á timabilinu auk þess sem farið er i tvær æfinga- og skemtiferðir yfir veturinn


Þjálfarar D hóps í Vesturbæjarlaug er Páll Janus Þorðarson.

 

Þjálfari D hóps í Sundhöllinni er Halldór Kristiansen.

 

[nánar um D hópana]


Sundskóli KR
E hópar eru byrjendahópar fyrir 4-8 ára krakka. Æfingar E hópanna fara fram innanhúss í Austurbæjarskóla og Sundhölliinni við Barónsstíg og er stærð hópanna stillt í hóf. Í þessum hópum eru grunnhreyfingar sundsins kenndar og ýmsar æfingar kynntar til þess að venja krakkana við vatn, reglulega hreyfingu og góð sundtök. 

 

Aðalþjálfarar i Austurbæjarskóla eru Símon geir Þorsteinssoní þróttafræðingur  og Halldor Kristiansen ásamt tveimuraðstoðarþjálfurum. Halldor Kristiansen sér um kennsluna í Sundhöllinni.

  

[nánar um E hópana]


Garpar
Garpahópurinn er fyrir  sundáhugmenn sem vilja halda sér í formi í skemmtilegum félagsskap. Æft er tvisvar i viku i sundlaug Vesturbæjar.  Í hópnum eru um 20 manns á aldrinum 23 - 55+ ára. Hver æfing er um ein kl.st og fara æfingar fram i sundlaug Vesturbæjar. Æfingar henta öllum einstaklingum og er ekki skilyrði að hafa verið sundmaður i "fyrra lífi"
Þjálfari hópsins er Eiríkur  Þórir Baldursson.
Æfingar verða á eftirtöldum timum næsta vetur. laugartimar.
Manudaga kl. 19.45 - 20.45
Miðvikudaga 19.45 - 20.45
Nýir Garpar eru velkomnir i hópinn
Frekari upplysingar veitir Jóhannes á sund@kr.is

 

Leita

Vefur Sunddeildar
Google

 


Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til sund@kr.is