12. febrúar 2010

Yngri flokkar: Reykjavíkurmótið hefst á sunnudag

Fyrstu leikirnir á Reykjavíkurmótum yngri flokkanna fara fram á sunnudag, 14. febrúar, en þá leikur KR við Víking á Víkingsvelli í 4. flokki karla.
 

Leikur A-liðanna hefst kl. 13:00, leikur B-liðanna kl. 14:20 og leikur C-liðanna kl. 15:40.
 

Laugardaginn 20. febrúar leikur KR við Leikni í 2. flokki karla og sama dag leikur KR við Leikni í 5. flokki kvenna.
 

3. og 5. flokkur karla leika sína fyrstu leiki sunnudaginn 21. febrúar, 4. flokkur kvenna leikur sinn fyrsta leik 27. febrúar og degi síðar hefst keppni í 3. flokki kvenna. Reykjavíkurmót 2. flokks kvenna fer ekki fram að þessu sinni.

Til baka

Leita

KR vefurinn
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is