Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Viðbrögðsteymi

v_teymi_2

ALMENN KYNNING

Viðbragðsteymi Vesturbæjar

Viðbragðsteymi  Vesturbæjar var stofnað  6. mars 2008. Boð sent til fulltrúa leik- og grunnskóla, lögreglu, heilsugæslu, kirkju, íþróttafélags og skáta. Valið var stjórn Viðbragðsteymis Vesturbæjar. Stjórnina skipa: fulltrúi Vesturgarðs, fulltrúi leik- og grunnskóla,fulltrúi heilsugæslu, fulltrúi Frostaskjóls og KR.

Markmiðið með stofnun viðbragðsteymis er að tryggja samvinnu allra stofnana í Vesturbænum og þar með styðja öflugar við alla starfsmenn og íbúa í hverfinu.

Verkefni stjórnar er að tryggja tengilið í öllum stofnunum. Móta reglur og áætlanir teymisins, senda út mikilvægar upplýsingar sem aðrir geta nýtt sér og kynna fræðslu um áfallahjálp. Hafa yfirsýn á áfallaáætlanir í öllum stofnunum hverfisinns og styðja við fjölskyldur og einstaklinga í vesturbænum ef upp koma áföll.

Forsendur viðbragðsteymis er að unnið er frá skilgreiningu á orsökum áfallastreitu, og ef  einstaklingurinn er þátttakandi eða vitni að atburði þar sem dauðsfall eða ógn um dauða eða alvarlegan skaða þeirra eða annarra á sér  stað. Viðbragðsteymið hjálpar einstaklingum um  hvert er að hægt leita í neyð.  Viðbragðsteymið fylgir málum eftir og  fer yfir mál sem koma að fjöskyldum, leik- og grunnskóla og íbúum í hverfinu.

Viðbragðsteymi  Vesturbæjar skipa :

          Elín Mjöll Jónasdóttir leikskólastjóri, fulltrúi leikskóla – 693-9893

                         Varamaður: Rannveig Bjarnadóttir leiksólastjóri – 693-9820

          Guðrún Kaldal forstöðukona Frostaskjóls, frístundamiðstöðvar – 695-5056

                         Varamaður:  Héðinn Sveinbjörnsson – 695-5052

          Hildur Einarsdóttir deildarstjóri, fulltrúi Hagaskóla – 664-8213

                         Varamaður:  Ómar Örn Ólafsson aðstoðar skólastjóri -  664-8211

          Theodóra Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur, Heilsugæslan – 861-9674

                         Varamaður:  Guðrún Þorláksdóttir hjúkrunarfræðingur, Heilsugæslan

          sr. Örn Bárður Jónsson, Neskirkja – 893-2311

                         Varamaður: sr. Sigurður Árni Þórðarson, Neskirkja – 862-2312

          Stefán Arnarson íþróttafulltrúi KR – 699-4555

                         Varamaður: Magnús Ingimarsson

          Sigþrúður Erla Arnardóttir sálfræðingur, deildarstjóri Vesturgarði – 664-7781

                         Varamaður:  Sigrún Skaftadóttir félagsráðgjafi, deildarstjóri - 899-3315     

Heimasíða Blátt áfram

KR er komið í samstarf með Blátt áfram samtökunum.  Að því tilefni var haldinn fundur fyrir þjálfara og starfsfólk KR fimmtudaginn 15. desember.  Fundurinn var vel sóttur og voru líflegar umræður um stefnu og starfsaðferðir KR þegar grunur vaknar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem vinna með börnum og unglingum á fundinum var rætt um forvarnarverkefnið Blátt áfram og hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum.  Spurningum eins og hver eru merkin og hvert á að leita hjálpar voru rætt og líka var rætt um út afhverju börnin segja ekki frá og hvernig er mikilvægast að tala við börnin?

Farið var  í gegnum 7 skrefa bæklinginn og mikilvægi þess að leita sér hjálpar þó að það geti verið erfitt. Staðreyndirnar voru ræddar, þar kom fram að 1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir ofbeldi fyrir 18 ára aldur á Íslandi. Farið var yfir hvað er kynferðislegt ofbeldi. Einnig var talað um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Sigríður talaði um hennar reynslu og afleiðingar þess að alast upp við ofbeldi og hvað þar er mikilvægt að finna leið til að segja frá. Að lokum var rætt um leiðir og úrræði sem í boði eru fyrir alla fjöskylduna.
Sigríður Björnsdóttir frá Blátt áfram stjórnaði fundinum og verður hún félaginu til halds og trausts í þessum málum í samvinnu við Stefán Arnarson íþróttafulltrúa KR.

 

KR-ingurinn

 

Knattspyrnufélag Reykjavíkur er um þessar mundir að innleiða KR-inginn í allar deildir félagsins. KR-ingurinn er kennsluskrá sem felur í sér skipulag þjálfunar á líkamlegri, félagslegri og sálfræðilegri færni iðkenda félagsins. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur hefur haft veg og vanda að hugmyndafræði KR-ingsins.

Viðar í samvinnu við íþróttafulltrúa félagsins, stjórnarmenn og þjálfara búið til skipulag þjálfunar á félags- og sálfræðilegum þáttum starfsins. Það skipulag er byggt á þeirri hugmyndafræði að hægt sé að þjálfa og styrkja félagsfærni og sálfræðilega færni alveg eins og hægt er að þjálfa líkamlega færni iðkenda.

Íþróttaæfingar byggja á markvissri þjálfun líkamlegra eiginleika en ekki hefur verið unnið markvisst að því í íþróttafélögunum að styrkja þætti eins og félagsfærni, sjálfstraust og leiðtogahæfni svo einhverjir séu nefndir. KR-ingurinn er skref í þá átt og er ætlaður sem kennsluskrá fyrir líkamlega, félagslega og sálfræðilega þætti þjálfunar allra iðkenda félagsins.

Við megum ekki gleyma því að íþróttastarf snýst ekki einungis um keppni og sigra heldur er íþróttastarf uppeldisstarf og eiga íþróttafélögin að sinna einhvers konar uppeldishlutverki þar sem iðkendum eru kennd þau gildi og viðhorf sem samfélagið vill halda á lofti hverju sinni. Íþróttir eru kjörin vettvangur til að kenna unga fólkinu okkar þau gildi og viðhorf sem vænleg eru til árangurs í víðri merkingu þess orðs. Þau ungmenni sem eru í góðu líkamlegu formi, með sterkra félagsfærni og gott hugarfar eru líkleg til að ná árangri í hverju sem þau taka sér fyrir hendur, hvort sem það er inn á íþróttavellinum, í skólanum, vinnu eða á öðrum vígstövðum. Með innleiðingu KR-ingsins vill félagið því með markvissum hætti taka enn frekari samfélagslega ábyrgð á uppeldi æskunnar í Vesturbænum.

KR-ingurinn er leiðarvísir um áherslur og nálgun þjálfara á hverju aldursskeiði. Þjálfarar vita því hvaða áherslur á að leggja hverju sinni og hvaða leiðir eru líklegar til að styrkja iðkendur á öllum sviðum. Í KR-ingnum er einnig minnst á hlutverk félagsins sem og iðkenda og foreldra þeirra því með sameiginlegum áherslum allra þeirra sem koma að unga fólkinu er hægt að skapa því umhverfi sem ýtir undir metnað, sjálfstraust og trú þess að það geti staðið sig vel í því sem það tekur sér fyrir hendur sem og þau viðhorf og hegðun sem líkleg eru til árangurs.

Til að draga þetta saman þá eru helstu markmið KR-ingsins að stuðla að enn ánægðari iðkendum, draga úr brottfalli úr félaginu, auka almenna hæfni iðkenda sem og keppnislegan árangur til lengri tíma litið.

Innleiðing KR-ingsins er þegar hafin í knattspyrnudeild og handknattleiksdeild félagsins.





Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2012 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is