Framtíðarsjóður KR


Saga KR frá 1899 geymir marga glæsta sigra og marga stóra drauma sem rættust. En saga KR er þó fyrst og fremst saga um mikilvægt samfélagslegt hlutverk og umfangsmikið barna- og unglingastarf í vesturbæ Reykjavíkur.

Metnaður KR stendur til þess að sinna því starfi enn betur. Eitt skref í þeirri viðleitni er stofnun Framtíðarsjóðs KR.

Markmið Framtíðarsjóðs KR er að verða með tíð og tíma hornsteinn félagsins alls, varanlegur grunnur fyrir framþróun félagsins um ókomin ár.


Framlög í Framtíðarsjóð KR mynda höfuðstól sem skerðist ekki og vex með nýjum framlögum. Aðeins má nota ávöxtun sjóðsins, umfram verðbólgu, til úthlutunar til verkefna sem teljast stuðla að framtíðarheill félagsins, s.s. uppbyggingar og þróunar á starfsemi og aðstöðu. Úthlutunum úr sjóðnum er þannig ekki ætlað að standa undir daglegum rekstri félagsins eða einstakra deilda.


Framlög í Framtíðarsjóð KR geta verið í ýmsu formi styrkja og gjafa, s.s. afmælisgjafa, arfs, minningarkorta, í tengslum við skipulögð söfnunarátök, eingreiðslur eða mánaðarlegar stuðningsgreiðslur.


Framtíðarsjóðurinn útbýr minningarskjal (sjá sýnishorn) um látna KR-inga með kveðju frá þeim sem óska þess og sendir til aðstandanda. Til að fá nafn sitt á skjalið skal greiða framlag í sjóðinn og senda tölvupóst á sonja@kr.is og gudjon@kr.is með nauðsynlegum upplýsingum.


Framlög skal greiða inn á reikning 0133-15-4877, kt. 700169-3919.


Share by: