FRÉTTIR

- fréttir úr öllum deildum kr -

Eftir Gunnar Egill Benonýsson 5. júní 2026
Það var mikið fjör í vesturbæjarlauginni í gær þegar sunddeildin hélt sumarskemmtun sunddeildar KR veitt voru verðlaun og viðurkenningar fyrir vorönnina yngstu iðkendur sunddeildarinnar sýndu hvað þau eru búin að læra í vor og elsta sundfólkið okkar tók nokkur skemmti boðsund. Þegar krakkarnir komu upp úr lauginni fengu þau grillaðar pylsur og djús. Þetta er í fyrsta skipti sem sunddeildin heldur þennan viðburð í vesturbæjarlauginni og er stefnt að því að gera þetta að árlegum viðburði hjá deildinni
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 1. júní 2026
Það var mikið fjör um helgina þegar sunddeild KR tók þátt á VIT-HIT leikunum á akranesi. KR-ingar stóðu sig frábærlega og var mikið um bætingar hjá okkar fólki Helstur úrslit: Atli Borg náði 3 sæti í 50m skriðsundi 11 ára og yngri Birna Rannveig Gunnarsdóttir náði 2 sæti í 50m skriðsundi og 3 sæti í 50m baksundi 11 ára og yngri Bríet Björk Jóhannsdóttir náði 3 sæti í 100m skriðsundi 11-13 ára Viktoría Vasile náði 2 sæti í 50m skriðsundi og 3 sæti í 100m skriðsundi í flokki 14-15 ára Einnig náði Emilý Sóley P.M. Eysteinsdóttir 5 besta tímanum í 100m bringusundi hjá 14 ára stelpum í sögu KR Inga Aniela Czurylo náði lágmarki inná aldursflokkameistara mótið í sundi sem er haldið í Reykjanesbæ 19-21 Júní. En KR mun keppa á AMÍ sem partur af sameinuðu liði Reykjavíkur. Áfram KR!!!
26. maí 2026
Sumarnámskeið KR í frjálsum íþróttum fer fram 1. - 26. júní 2026 fyrir börn 7 - 10 ára og 11 - 15 ára. Börn 7 - 10 ára Æfingar fara fram á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum í Vesturbænum. Hópurinn hittist við Frostaskjól og nýtir sér hin ýmsu svæði og skólalóðir. Þar verður farið í leiki og þær greinar æfðar sem hægt er að æfa miðað við aðstæður. Æfingartímar eru kl. 15:00 – 16:00. Námskeiðagjöld eru 20.000,- kr. Börn 11 - 15 ára Æfingar fara fram þrisvar sinnum í viku. Á mánudögum verða æfingar í Vesturbænum þar sem ýmis svæði verða nýtt þar í kring. Á þriðjudögum og fimmtudögum verða æfingar á Kastvelli við Laugardalsvöll, Laugardalshöll eða á ÍR vellinum. Æfingartímar eru kl. 16:30 – 17:45. Námskeiðagjöld eru 26.000,- kr. Fyrirspurnir sendast á sigrun1717@gmail.com eða í síma 895-4452. Allar skráningar og greiðslur fara fram á Sportabler, smelltu hér til að skrá iðkanda. ATH! Allar skráningar þurfa að berast áður en námskeið hefst. Námskeiðið verður aðeins haldið ef næg þátttaka næst. Sumarkveðjur, Þjálfarar frjálsíþróttadeildar KR Sigrún og Tóta
Eftir Ásta Urbancic 17. maí 2026
Á ársþingi Borðtennissambands Íslands þann 10. maí sl., voru þrír KR-ingar heiðraðir fyrir störf þeirra í þágu borðtennisíþróttarinnar. Það voru þau Auður Tinna Aðalbjarnardóttir sem fékk gullmerki BTÍ, Finnur Hrafn Jónsson og Hlöðver Steini Hlöðversson, sem fengu silfurmerki. Auður Tinna hefur verið formaður BTÍ frá árinu 2022 og var endurkjörin á þinginu til tveggja ára. Finnur hefur verið ötull við að taka myndir á borðtennisviðburðum, sem hann birtir síðan á netinu og leyfir öllum að nota.  Hlöðver var í stjórn BTÍ í mörg ár og sá að mestu um mótamál sambandsins, en er nú snúinn aftur til félagsins og hefur verið formaður Borðtennisdeildar KR undanfarin ár.
Eftir Ásta Urbancic 12. maí 2026
Guðrún Gestsdóttir varð þrefaldur Íslandsmeistari
Eftir Ásta Urbancic 12. maí 2026
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði í kvennaflokki á lokamóti BTÍ og Gullfisks, sem fór fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi föstudaginn 8. maí. Til keppni var boðið 8 stigahæstu leikmönnunum í karla- og kvennaflokki að loknum fjórum mótum í mótaröðinni á keppnistímabilinu. KR átti þrjár efstu í kvennaflokki, því Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð í 2. sæti og Helena Árnadóttir í 3. sæti. KR átti einn verðlaunahafa í karlaflokki, því Lúkas André Ólason varð fjórði. Verðlaunahafar: Opinn flokkur kvenna 1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR 2. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR 3. Helena Árnadóttir, KR 4. Magnea Ólafs, BM Opinn flokkur karla 1. Magnús Jóhann Hjartarson, BH 2. Óskar Agnarsson, HK 3. Kristján Ágúst Ármann, BH 4. Lúkas André Ólason, KR 
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 11. maí 2026
Sunddeild KR keppti á skólamatarmóti ÍRB í vatnaveröld í Reykjanesbæ 9-10 maí. KR-ingar stóðu sig glæsilega og bættu sig í flestum greinum. Verðlaunasæti unnu: Emilý Sóley P.M. Eysteinsdóttir: 3 sæti í 100m skriðsundi, 3 sæti í 200m skriðsundi og 2 sæti í 100m baksundi í flokki 14-15 ára kvenna Viktoría Vasile: 2 sæti í 200m flugsundi , 3 sæti í 50m flugsundi og 3 sæti í 100m flugsundi í flokki 14-15 ára kvenna Áfram KR!!!
7. maí 2026
Aðalfundur KR var haldinn fimmtudaginn 30. apríl við frábæra mætingu KR-inga. Virkilega gaman að sjá hversu margir voru mættir. Ný stjórn var kosin og lítur hún svona út: Þórhildur Garðarsdóttir situr áfram sem formaður félagsins. Í framboði til stjórnar voru Árni Geir Magnússon, Hilmar Gunnarsson, Jón Bjarni Kristjánsson, Magnús Ingimundarson, Rósa Hrönn Árnadóttir og Guðmundur Óskar Pálsson og mynda þau stjórnina. Þrjú framboð bárust í varastjórn og þar munu sitja Einar Baldvin Árnason, Guðrún Norðfjörð og Gunnar Sverrisson. Hörður Felix Harðarson gengur úr stjórn og þökkum við honum kærlega fyrir sinn tíma. ÁFRAM KR!
Eftir Gunnar Egill Benonýsson 6. maí 2026
Sundeild KR hefur framlengt samninginn við Gunnar Egil Benonýsson yfirþjálfara fyrir næsta tímabil. Gunnar mun leiða deildina í gegnum sitt fimmta tímabil sem yfirþjálfari Áfram KR!!!
Lesa meira