Siðareglur KR
Siðareglur KR
Þjálfari:
- Komdu fram við alla iðkendur á einstaklingsgrunni og á þeirra eigin forsendum.
- Vertu meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
- Talaðu ávallt gegn notkun ólöglegra lyfja, neyslu áfengis og tóbaks.
- Virtu alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika (Fair Play) í íþróttum.
- Sjáðu til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
- Mismunar ekki skjólstæðingum sínum, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.
Iðkandi ( yngri ) – þú ættir að:
- Sýna öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
- Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika (Fair Play) í íþróttum.
- Þræta ekki eða deila við dómarann og forðast niðurlægjandi köll um samherja, mótherja, dómara þjálfara eða aðra starfsmenn félagsins.
- Vinnur gegn fordómum og vinnur gegn einelti og kynþáttaníð.
Iðkandi (eldri) – þú ættir að:
- Sýna öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
- Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika (Fair Play) í íþróttum.
- Vera ávallt til fyrirmyndar varðandi framkomu og taka sjálf/ur höfuðbábyrgð á framförum þínum og þroska.
- Virða alltaf ákvarðanir dómara og annarra starfsmanna leiksins.
- Vinnur gegn fordómum og vinnur gegn einelti og kynþáttaníð
Foreldri/forráðamaður, hafðu ávallt hugfast að:
- Börn læra mest af því að framkvæma. Lærðu að meta góða frammistöðu allra barna í hópnum.
- Hvetja barnið þitt til að fara eftir og virða reglur íþróttanna og að leysa deilur án fjandskapar eða ofbeldis.
- Styðja og hvetja öll börn og ungmenni – ekki bara þín eigin.
- Mismunar ekki skjólstæðingum sínum, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.
Stjórnarmaður/starfsmaður:
- Stattu vörð um siðareglur og gildi félagsins og sjáðu um að hvorttveggja lifi áfram meðal félagsmanna.
- Virtu alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika (Fair Play) í íþróttum.
- Haltu félagsmönnum vel upplýstum og gerðu félagsmenn að þátttakendum í ákvarðanatöku eins og hægt er.
- Mismunar ekki skjólstæðingum sínum, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.