Endurgreiðsla á skatti


Einstaklingar geta styrkt KR um allt að 350.000,- en að lágmarki 10.000,- á ári sem er frádráttarbært frá skattskyldum tekjum.

Dæmi: Einstaklingur sem greiðir 4.000,- styrk til KR á mánuði fær skattaafslátt að fjárhæð 15.096,- og greiðir þannig í raun 32.904,- fyrir 48.000,- styrk til félagsins


Nánari upplýsingar

 

Fyrirtæki geta líka fengið skattaafslátt vegna styrkja. Fyrirtækjum er heimilt að draga frá skattstofni allt að 1,5% af rekstrartekjum. Miðað er við algengustu skattprósentu lögaðila, þ.e. 20%.

Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir KR um 500.000,- getur lækkað tekjuskattinn sinn um 100.000,-. Fyrirtækið greiðir þannig í raun 400.000,- fyrir 500.000,- styrk til KR.


Nánari upplýsingar

Svona virkar ferlið


Þú millifærir upphæð að eigin vali að lágmarki 10.000,- og að hámarki 350.000,- inn á þá deild sem þú vilt styrkja hjá KR.


Aðalstjórn: 0137-26-007089  kt. 700169-3919

Badminton: 0137-26-7987  kt. 520391-1269

Borðtennis: 0137-26-008312  kt. 661191-1129

Fótbolti: 0137-26-005911  kt. 591184-0169

Frjálsar: 0137-26-10269  kt. 620981-0289

Glíma: 0137-26-001399  kt. 551189-1399

Körfubolti: 0133-26-005109  kt. 510987-1449

Skák: 0137-26-004400  kt. 441199-2019

Skíði: 0137-26-005200  kt. 540174-0249

Sund: 0101-26-94700  kt. 661191-1209

Taekwondo: 0101-26-287082  kt. 700169-3919

Rafíþróttir: 0137-15-380321  kt. 700169-3919

Framtíðarsjóður KR: 0133-15-4877  kt. 7001693-919

 

Þegar búið er að millifæra þarf að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum á kr@kr.is.

Nafn greiðanda

Kennitala greiðanda

Fjárhæð framlags

Hvaða deild er verið að styrkja

Greiðsludagur


KR mun senda kvittun til baka á greiðanda þar sem kemur fram nafn og kennitala greiðanda og fjárhæð framlags. Við munum einnig koma upplýsingum um styrk til Skattsins, sem kemur skattaafslættinum til skila til þín.


Við erum afar þakklát fyrir alla styrki sem koma til okkar, bæði stóra og smáa. TAKK fyrir okkur!

Share by: