A-lið KR varð í 2. sæti í 1. deild kvenna

A-lið KR lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna við lið Víkings laugardaginn 25. apríl. Víkingskonur sigruðu í leiknum 4-0 og eru Íslandsmeistarar. Lið KR-A skipuðu þær Aldís Rún Lárusdóttir, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir og Helena Árnadóttir en einnig lék Sól Kristínardóttir Mixa með liðinu í vetur.

Það má segja að þessi dagur hafi verið "stöngin út" fyrir KR, því allar tæpar lotur í leiknum töpuðust.


C-lið KR, sem varð í 2. sæti í 2. deild karla lék umspilsleik við A-lið HK, sem hafnaði í næstneðsta sæti í 1. deild karla. HK-A sigraði 4-1 en athygli vakti að Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir sigraði sterkasta leikmann HK 3-0. KR mun engu að síður eiga tvö lið af sex í 1. deild karla á næsta keppnistímabili, en C-KR leikur áfram í 2. deild.


D-lið KR lék umspilsleik um sæti í 3. deild á næsta keppnistímabili við D-lið HK. HK-D vann 4-1. KR mun samt eiga lið í 3. deild á næsta keppnistímabili því E-lið KR hélt sæti sínu í deildinni.