Ert þú á aldrinum 17-25 ára og vilt vinna í KR í sumar?

Ráðning sumarliða er hafin eins og hefur verið undanfarin ár, í samráði við Hitt Húsið og Reykjavíkurborg. Breyting hefur þó orðið á þar sem KR heldur nú utan um ráðningar og samninga.

 

Sumarliðar þurfa að uppfylla eftirfarandi kröfur:

  • Vera á aldrinum 17-25 ára (miðað er við fæðingarár)
  • Vera með lögheimili í Reykjavík
  • Vera með hreint sakarvottorð í samræmi við æskulýðslög
  • Ungmenni geta ekki verið í starfi sem sumarliði hjá tveimur félögum á sama ári eða ekki meira en nemur samtals 8 vikna ráðningu í 100% starfi.

 

Sumarstörfin felast í vinnu við fótbolta- og körfuboltaskóla félagsins. Sérstaklega er óskað eftir einstakling til þess að hafa yfirumsjón með gæslu í kringum námskeiðin.

 

Starfshlutfall er ýmist 50-100%.

Umsóknarfrestur er til 8. maí! 

Allar umsóknir skulu berast til Eyþórs Daða, íþróttastjóra KR, á eythor@kr.is