KR Íslandsmeistarar í skák 8 ára og yngri

A- sveit KR vann C-flokk (8 ára og yngri) Íslandsmóts barna- og unglingasveita í skák sem fram fór sunnudaginn 18. nóvember.


Í sveitinni voru:
Jón Fenrir Ragnarsson, Dalmar Bragi Aronsson, Theodór Nóel Schram, og Ari Hrafn Briem.

KR vann einnig C-flokkinn fyrir ári síðan.


Í B-flokki (9-12 ára) lenti A-sveit KR í 2. sæti og í A-flokk (13-16 ára) lenti A -sveit KR í 4. sæti.



Samtals tefldu 39 krakkar úr KR á Íslandsmóti barna- og unglingasveita í 9 sveitum. Tæplega helmingur af öllum iðkendum í Skákdeild KR tefldi á Íslandsmóti barna- og unglingasveita.