C-lið KR er í forystu í 2. deild karla
A-lið KR er í 2. sæti í 1. deild karla

Þriðja leikjahelgi af fimm í deildakeppni BTÍ var 21.-22. nóvember, en þá var leikið í öllum fjórum deildum karla. Keppni í 1. og 3. deild fór fram í Íþróttahúsi Hagaskóla en aðrar deildir léku í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún í Reykjavík og í Stekkjaskóla á Selfossi.
C-lið KR leikur í 2. deild og er í forystu eftir sex umferðir af tíu með 10 stig. Liðið tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu, þegar það tapaði 4-6 fyrir B-liði BR en heldur forystunni í deildinni. C-lið BH er í 2. sæti með 8 stig.
Í 1. deild karla er A-lið KR í 2. sæti með 8 stig á eftir A-liði BH, sem hefur 10 stig. B-lið KR er í 3. sæti með 7 stig.
D-lið KR leikur í 3. deild og er þar í 3. sæti með 6 stig eftir 5 leiki.
KR er með þrjú lið í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deildar, en einnig er leikið í suðurriðlum. KR-E og BH-D deildu forystunni fyrir þennan leikdag en KR-E tapaði fyrir BH-D og er því dottið niður í 2. sæti, ásamt A-liði ÍFR. Bæði liðin hafa 9 stig. KR-F hefur 5 stig og KR-G 2 stig.
Næst verður leikið í karladeildunum 9.-10. janúar 2027.
Úrslit úr einstökum viðureignum KR-liðanna
1. deild
KR-A – HK-A 5-5
KR-B – BH-B 6-1
KR-B – KR-A 4-6
2. deild
KR-C – BR-B 4-6
KR-C – HK-B 6-3
3. deild
KR-D – HK-C 6-3
KR-D – BM 6-0 (BM mætti ekki til leiks)
4. deild höfuðborgarsvæðisriðill
KR-E – BH-D 3-6
KR-G – ÍFR-A 0-6
ÍFR-B – KR-F 0-6
KR-F – BH-D 3-6
KR-G – KR-E 0-6
Á forsíðunni má sjá lið KR-C.






