A-lið KR í forystu í 1. deild kvenna

Fyrri leikdagur í deildakeppni kvenna í borðtennis var sunnudagurinn 15. nóvember en þá var leikið í Íþróttahúsi Hagaskóla. A-lið KR er í forystu eftir fyrri leikdaginn. Í 1. deild eru þrjú lið, A- og B-lið KR og lið Víkings, sem er ríkjandi Íslandsmeistari.

Víkingskonur mættu ekki til leiks en KR-A vann KR-B 6-0 og leiðir því í deildinni eftir fyrri leikdag.

Seinni umferðin í deildinni er 6. febrúar 2027 en síðan verður úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í apríl.


Á forsíðumyndinni, sem Auður Tinna Aðalbjarnardóttir tók, má sjá þær Guðbjörgu Völu Gunnarsdóttur og Helenu Árnadóttur úr A-liði KR.