KR fékk viðurkenningu fyrir öflugt starf á sviði félagsmála og forvarna


Á 46. sambandsráðsfundi UMFÍ, sem haldinn var á Ísafirði 10. október sl., hlaut Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) Hvatningarverðlaun UMFÍ fyrir öflugt starf KR á sviði félagsmála og forvarna.


Sérstaklega var horft til víðtæks átaks félagsins gegn notkun nikótínpúða og aukinnar áherslu á sýnileika sjálfboðaliða í félagsstarfinu.


Við erum með frábærar fyrirmyndir í meistaraflokkum okkar sem vilja leggja sitt af mörkum til að skapa heilbrigt og jákvætt umhverfi fyrir yngri iðkendur félagsins. Með öflugri fræðslu, góðum fyrirmyndum og samstilltu átaki viljum við stuðla að heilbrigðum lífsstíl og sterkri félagsvitund innan KR.


Við erum stolt af þessari viðurkenningu sem hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut!