Fréttatilkynning
Reykjavík, 18. september 2026
Kæru iðkendur, þjálfarar og starfsfólk, sjálfboðaliðar og aðrir félagar í KR.
Alvarlegt atvik kom upp tengdum þjálfurum KR og Gróttu á fundi Sundsambands Íslands í gær. Við erum öll harmi slegin vegna þessa. Fjölmiðlar hafa fjallað um málið í dag. Af tillitsemi við alla sem málinu og félögunum tengjast fjöllum við ekki ítarlegar um það hér, að öðru leyti en því að lögregla brást skjótt við og hefur málinu verið vísað í réttan farveg.
Við hörmum málið og teljum mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri við forráðafólk og iðkendur KR:
Málið er í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Sérhver einstaklingur sem telur sig þurfa á aðstoð að halda vegna afleiðinga þess getur haft samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs (samskiptaradgjafi.is / sími: 581-1009/839-9100/783-9100).
Forsvarsfólk KR, Gróttu og Sundsambands Íslands er í samskiptum við samskiptaráðgjafa varðandi málið og mun ekki tjá sig um það við fjölmiðla. Málið er á afar viðkvæmu stigi og mikilvægt að við hlúum hvert að öðru.
Með þökkum fyrir hjartahlýju og samhug.
Þórhildur Garðarsdóttir
Formaður KR






