Ný innilaug í vesturbænum


Árið 2004 var samþykkt deiliskipulag fyrir vesturbæinn þar sem gert er ráð fyrir að byggt verði ný innilaug við núverandi sundlaug vesturbæjar. En meira en 20 árum síðar hefur laugin ekki enþá verið byggð



Árið 2006 birtust greinar í blöðum um mikilvægi þess að stækka vesturbæjarlaug vegna plássleysis enda hefði sundlaugargestum fjölgað gífurlega og var áætlað að framkvæmdir myndu hefjast að ári liðnu

Þessar framkvæmdir fóru aldrei á stað en samkvæmt skýrslu Reykjavíkurborgar um stefnu í íþróttamálum þá fær vesturbæjarlaugin nærrum því 400.000 gesti á ári (tölur frá 2018) sem er töluverð aukning frá 2006 þegar gestir voru 250.000 en samt hefur ekkert breyst í aðstöðumálum.

Innilaug í vesturbænum er á lista yfir yfirlit af hugmyndum að íþróttamannvirkjum í skýrslu Stýrihóps á vegum Reykjavíkurborgar vegna mótunar stefnu í íþróttamálum í Reykjavík til 2030 (birt 28 febrúar 2020) og nýjasta deiliskipulag gerir ennþá ráð fyrir að það verði byggt ný inni laug í vesturbænum.

Sunddeild KR telur það óboðlegt að þessar framkvæmdir hafi dregist svona lengi og leggur til að farið verði í þær framkvæmdir sem var búið að leggja drögin að fyrir áratugum síðan.

Framtíðarsýn sunddeildar KR er að geta boðið börnum í vesturbænum að stunda æfingar í nærumhverfi sínu á öllum aldri.
Einnig myndi þessi aðstaða stórbæta skólasundkennslu í vesturbænum.
Auk þess að veita almenningi enþá betri aðstöðu til að stunda sína sundiðkun
Vesturbærinn á ekki að þurfa að bíða endalaust eftir bættri sundaðstöðu

About us title