KR-INGUR MÁNAÐARINS

KR-ingur mánaðarins er sá einstaklingur sem hefur lagt sitt af mörkum til félagsins eða verið félaginu til sóma utan skipulagðra æfinga, keppna eða launaðra vinnu á vegum KR.


Einstaklingurinn getur verið iðkandi, starfsmaður, forráðamaður, sjálfboðaliði eða stuðningsmaður, þvert á deildir félagsins.

Senda inn tilnefningu

KR-ingur júlímánaðar er sjálfboðaliðinn Ágúst Sæmundsson!


Ágúst hefur staðið vaktina í gæslunni í vel flestum heimaleikjum KR í sumar, bæði kvenna og karla! Auk þess fór hann út til Bandaríkjanna sem fararstjóri með 3.flokki karla um miðjan júlí.

Starfsfólk aðalstjórnar valdi KR-ing júní mánaðar en framvegis verður hægt að senda inn tilnefningar. Allar tilnefningar verða skoðaðar en krafa er gerð um rökstuðning. Starfsfólk aðalstjórnar fer yfir tilnefningar í lok hvers mánaðar og birtir KR-ing mánaðarins á miðlum sínum og heimasíðu félagsins.

KR-ingur mánaðarins hlýtur gjafabréf á Flatey Pizza í þakkarskyni!

Fyrri mánuðir