Gestur og Þórunn sigruðu á Coca-Cola móti Víkings

23. febrúar 2026

Marta sigraði í 1. flokki kvenna

Coca-Cola mót Víkings var haldið í TBR-húsinu laugardaginn 21. febrúar. Gestur Gunnarsson sigraði í meistaraflokki karla og Þórunn Erla Gunnarsdóttir í meistaraflokki kvenna.

KR fékk einnig silfurverðlaun í meistaraflokki karla, þar sem Lúkas André Ólason varð annar.


Marta Dögg Stefánsdóttir sigraði í 1. flokki kvenna en hún varð í 3. sæti í meistaraflokki en Magnea Ólafs varð önnur.


Þórunn Erla varð svo önnur í 1. flokki kvenna á eftir Mörtu.


Myndir af vef BTÍ.