Guðbjörg Vala og Helena Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna

23. mars 2026

KR-ingar á verðlaunapalli í öllum flokkum

Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir og Helena Árnadóttir sigruðu í tvíliðaleik kvenna á Íslandsmótinu í borðtennis, sem fram fór í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði 21.-22. mars. Þær sigruðu Evu Jósteinsdóttur og Nevenu Tasic úr Víkingi 3-0 í úrslitaleik og töpuðu ekki lotu á mótinu. Þær eru fæddar árið 2010 og eiga því framtíðina fyrir sér.

Aldís Rún Lárusdóttir varð í 3.-4. sæti en hún lék með Sól Kristínardóttur Mixa úr BH og Marta Dögg Stefánsdóttir og Þórunn Erla Gunnarsdóttir fengu sömuleiðis bronsverðlaun.


Guðbjörg Vala varð í 2. sæti í einliðaleik kvenna, eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Sól Kristínardóttur Mixa úr BH. Leiknum lauk í framlengdri oddalotu þar sem öllum lotum í leiknum nema einni lauk með minnsta mun. Í undanúrslitum hafði Guðbjörg Vala slegið út ríkjandi Íslandsmeistara, Nevenu Tasic 4-3. Helena varð í 3.-4. sæti.


Guðbjörg Vala fékk líka silfur í tvenndarleik ásamt Gesti Gunnarssyni bróður sínum, en þau töpuðu 1-3 í úrslitum fyrir Inga Darvis Rodriguez og Nevenu Tasic úr Víkingi. Aldís Rún Lárusdóttir og Davíð Jónsson höfnuðu í 3.-4. sæti.


Davíð fékk brons í einliðaleik karla en hann tapaði 1-4 í undanúrslitum fyrir Inga Darvis Rodriguez, sem varð Íslandsmeistari. Þetta var eina lotan sem Ingi tapaði í einliðaleik.


Í tvíliðaleik karla fengu tveir KR-ingar bronsverðlaun: Gestur Gunnarsson, sem lék með Birgi Ívarssyni úr BH, og Ellert Kristján Georgsson, en hans meðspilari var Óskar Agnarsson úr HK.