Guðmundur Flóki á Grand Prix!
27. mars 2026
FLÓKI Á GRAND PRIX !
Guðmundur Flóki Sigurjónsson, íþróttakarl KR og taekwondo-kempa er búinn að tryggja sér keppnisrétt á fyrsta Grand Prix mót ársins.
Eftir frábært gengi undanfarið hefur Flóki tryggt sér keppnisrétt í -80 flokki á Grand Prix í bardaga sem haldið er í Róm í júní. Flóki er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur sér inn sæti á Grand Prix fyrir Ísland og annar Íslendingurinn til að keppa á Grand Prix frá upphafi. Grand Prix er sterkasta mótaröð í heimi og einungis topp 32 í hverjum ólympískum flokki sem vinna sér inn þátttökurétt.
Þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir Flóka sem heldur áfram að stíga góð skref í átt að Ólympíuleikunum eftir tvö ár. Til hamingju Flóki og KR!







