Íslandsmeistarar

Nú um helgina, 7. nóvember, fór fram Íslandsmót í taekwondo bardaga og áttu KR-ingar glæsilegan hóp á mótinu.

Í veteran flokki (35 ára og eldri) kvenna röðuð KR-ingar sér á allan pallinn, Ragna Kristjónsdóttir sigraði, María Rán Guðjónsdóttir varð í öðru sæti og Kristjana     Guðjónsdóttir varð í þriðja sæti. Hörkuflokkur og glæsilegur árangur hjá okkar konum.

Á hinum enda aldursskalanns er cadet flokkur (12-14 ára) varð Prasun Tiwari Duwadi í þriðja sæti. Það var svo í junior flokkunum (15-17 ára) sem KR átti sína sterkustu keppendur. Í -73 kg flokki vann Christian Eyjólfur Mba sig inn í undanúrslit og endaði með brons, í +73 kg flokki fór Erling Kári Freysson alla leið og kom heim með gull og stúlku megin sigraði Bryndís Eir Sigurjónsdóttir sinn bardaga auðveldlega.

Allt í allt þrjú gull, eitt silfur og þrjú brons og sjö unnir bardagar sem skilaði félaginu 48 stigum og öðru sæti í stigakeppni félaga en Keflavík sigraði keppnina að þessu sinni.

Á myndinni má sjá keppendur ásamt Guðmundi Flóka Sigurjónssyni sem var þjálfari okkar að þessu sinni en hann undirbýr sig nú fyrir stórmót í Kongó í desember.

Á myndinni eru frá vinstri Patrekur, Óliver, Ómar, Bjartur, Christian, Anton, María, Kári, Flóki, Bryndís og Kristjana. Á myndina vantar Rögnu og Prasun.