KR-C tekur forystu í 2. deild karla eftir tvær umferðir
KR-B í 2. sæti í 1. deild karla
Keppni hófst í deildakeppni BTÍ helgina 19.-20. september og voru leiknar tvær umferðir í flestum deildum. Leikið var í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi og í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún.
C-lið KR vann báða leiki sína í 2. deild og hefur tekið forystu í deildinni með 4 stig.
B-lið KR er í 2. sæti í 1. deild með 3 stig eftir jafntefli við A-lið KR og sigur á A-liði HK. A-liðið tapaði hins vegar fyrir A-liði BH og hefur 1 stig eftir tvær umferðir.
D-lið KR er í 3. deild og hefur tvö stig eftir leiki helgarinnar.
KR er með þrjú lið í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deildar. KR-E og KR-F eru meðal þeirra fjögurra liða sem eru efst með 3 stig eftir tvær umferðir, en G-lið KR er án stiga.
Úrslit úr einstökum viðureignum
1. deild
KR-A – KR-B 5-5
BH-A – KR-A 6-0
HK-A – KR-B 4-6
2. deild
HK-B – KR-C 3-6
BH-C – KR-C 3-6
3. deild
Akur – KR-D 6-3
HK-D – KR-D 4-6
4. deild höfuðborgarsvæðisriðill
KR-E – KR-G 6-1
BH-D – KR-F 5-5
ÍFR-A – KR-E 5-5
KR-F – KR-G 6-2
Á forsíðunni má sjá lið KR-D.






