KR vann sex titla á Íslandsmóti unglinga

2. mars 2026

Guðbjörg Vala, Helena, Júlía Fönn og Lúkas unnu tvöfalt

KR vann sex titla á Íslandsmóti unglinga í borðtennis, fleiri en nokkurt annað félag. Mótið fór fram í Vallaskóla á Selfossi 28. febrúar - 1. mars og var keppt í 17 flokkum í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.


Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir, Júlía Fönn Freysdóttir og Lúkas André Ólason urðu tvöfaldir meistarar á mótinu. Anna Villa Sigurvinsdóttir vann einn titil. Auk þeirra unnu fjölmargir KR-ingar til verðlauna.


Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir heldur sigurgöngu sinni áfram en hún hefur unnið sinn aldursflokk í einliðaleik á hverju ári frá 2019, að undanskildu árinu 2020 þegar mótið féll niður vegna kórónuveiru faraldursins.


Verðlaunahafar í einstökum flokkum:


Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára

1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR

2. Helena Árnadóttir, KR

3.-4. Marta Stefánsdóttir, KR

3.-4. Weronika Grzegorczyk, Garpur


Einliðaleikur drengja 16-18 ára

1. Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingur

2. Kristján Ágúst Ármann, BH

3.-4. Heiðar Leó Sölvason, BH

3.-4. Viktor Daníel Pulgar, KR


Einliðaleikur meyja 14-15 ára

1. Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur

2. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR


Einliðaleikur sveina 14-15 ára

1. Lúkas André Ólason, KR

2. Adam Lesiak, Víkingur

3.-4. Sigurður Einar Aðalsteinsson, BH

3.-4. Sindri Þór Rúnarsson, BH


Einliðaleikur telpna 12-13 ára

1. Júlía Fönn Freysdóttir, KR

2. Anna Villa Sigurvinsdóttir, KR

3.-4. Guðbjörg Stella Pálmadóttir, Garpur

3.-4. Helga Ngo Björnsdóttir, KR


Einliðaleikur pilta 12-13 ára

1. Benedikt Darri Malmquist, HK

2. Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpur

3.-4. Andri Sigurjón Hrundarson, HK

3.-4. Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH


Einliðaleikur táta 11 ára og yngri

1. Marsibil Silja Jónsdóttir, Dímon

2. Anna Karen Malmquist, Umf. Vísir

3.-4. Ingibjörg Halla Gestsdóttir, Umf. Gnúpverjar

3.-4. Lóa Jolanta Dariuszdóttir, KR


Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri

1. Brynjar Gylfi Malmquist, HK

2. Björn Kári Valsson, HK

3.-4. Pétur Steinn Stephensen, Víkingur

3.-4. Sindri Karl Heimisson, HK


Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára

1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir/Helena Árnadóttir, KR

2. Guðný Lilja Pálmadóttir/Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir, Garpur

3.-4. Lea Mábil Andradóttir/Weronika Grzegorczyk, Garpur

3.-4. Marta Stefánsdóttir/Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR


Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára

1. Heiðar Leó Sölvason/Kristján Ágúst Ármann, BH

2. Lúkas André Ólason/Viktor Daníel Pulgar, KR

3.-4. Almar Elí Ólafsson/Anton Óskar Ólafsson, Selfoss

3.-4. Anton Tristan Atlason Lira/Mikael Björn Melsted, KR


Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára

1. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir/Anna Karen Malmquist, ÍFR/Umf. Vísir

2. Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir/Þórdís Gunnarsdóttir, Dímon/KR


Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára

1. Benjamín Bjarki Magnússon/Sigurður Einar Aðalsteinsson, BH

2. Sindri Þór Rúnarsson/Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH

3.-4. Geir Thorberg Geirsson/Sævar Hörður Sverrisson, Garpur

3.-4. Magnús Loftsson/Stefán Bragi Bjarkason, BH


Tvíliðaleikur telpna 13 ára og yngri

1. Anna Villa Sigurvinsdóttir/Júlía Fönn Freysdóttir, KR

2. Guðbjörg Stella Pálmadóttir/Marsibil Silja Jónsdóttir, Garpur/Dímon

3.-4. Linda Björt Jóhannsdóttir/Saga Katrín Sveinbjörnsdóttir, Selfoss

3.-4. Katla Tran Michaelsdóttir/Soffía Ramona Devaney, KR


Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri

1. Benedikt Darri Malmquist/Brynjar Gylfi Malmquist, HK

2. Andri Sigurjón Hrundarson/Jörundur Steinar Hansen, HK

3.-4. Antoni Ben Powichrowski/Sindri Karl Heimisson, HK

3.-4. Björn Kári Valsson/Hjörleifur Brynjólfsson, HK


Tvenndarleikur 16-18 ára

1. Lúkas André Ólason/Helena Árnadóttir, KR

2. Viktor Daníel Pulgar/Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR

3.-4. Heiðar Leó Sölvason/Marta Stefánsdóttir, BH/KR

3.-4. Kristján Ágúst Ármann/Þórunn Erla Gunnarsdóttir, BH/KR


Tvenndarleikur 14-15 ára

1. Þorgeir Óli Eiríksson/Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur

2. Sindri Snær Steinarsson/Guðrún Birna Sveinbjörnsdóttir, Selfoss

3.-4. Björgvin Arnar Arnarsson/Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR

3.-4. James Franklin Viggiano/Álfrún Milena Kvaran, KR


Tvenndarleikur 13 ára og yngri

1. Guðmundur Ólafur Bæringsson/Guðbjörg Stella Pálmadóttir, Garpur

2. Brynjar Gylfi Malmquist/Anna Karen Malmquist, HK/Umf. Vísir

3.-4. Esteban Gabríel O. Gunnarsson/Linda Björt Jóhannsdóttir, Garpur/Selfoss

3.-4. Valur Freyr Stefánsson/Marsibil Silja Jónsdóttir, Dímon


Myndir frá Finni Hrafni Jónssyni.