C-lið KR sigraði í 2. deild kvenna
A-lið KR í 2. sæti í 1. deild kvenna

Síðustu leikirnir í kvennadeildunum í borðtennis voru leiknir í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi laugardaginn 11. apríl. C-lið KR sigraði í 2. deild kvenna en lið Garps varð í 2. sæti. E- og D-lið kvenna urðu í 3. og 4. sæti. C-lið KR skipuðu þær Þórunn Erla Gunnarsdóttir, Marta Dögg Stefánsdóttir, Ársól Clara Arnardóttir og Kristjana Áslaug Káradóttir Thors en þær unnu alla leiki sína í deildinni 6-0.
A-lið KR hafnaði í 2. sæti í 1. deild kvenna en liðið tapaði 0-6 fyrir liði Víkings sem varð deildarmeistari, og skartaði tveimur sænskum leikmönnum í leiknum. Liðin mætast aftur í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn þann 25. apríl. Með A-liði KR léku þær Helena Árnadóttir, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Sól Kristínardóttir Mixa (sem er á láni hjá KR í 1. deild kvenna) og Aldís Rún Lárusdóttir.
Sama dag léku A- og B-lið KR í undanúrslitum í 1. deild karla. A-lið KR hafði hafnað í 3. sæti deildarinnar og mætti liðinu í 2. sæti, A-liði BH. BH-A sigraði 4-1 og vann Gestur Gunnarsson eina leik KR. Aðrir í liðinu voru Eiríkur Logi Gunnarsson og Ellert Kristján Georgsson.
B-lið KR hafnaði í 4. sæti deildarinnar og mætti deildarmeisturum Víkings-A. KR-B tapaði 1-4 og vann Norbert Bedö eina leik KR. Aðrir leikmenn liðsins voru Lúkas André Ólason og Pétur Gunnarsson.
Víkingur-A og BH-A mætast því í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla 25. apríl.







