Sameiginleg æfing hjá KR og Gróttu í 7.fl. karla í handbolta
2. júní 2025

Á dögunum fóru strákarnir í 7.flokki í heimsókn til félaganna sinna á Seltjarnarnesi. Tekin var sameiginleg æfing og spil þar sem lagt var upp úr því að strákarnir kynntust enda sameinast hóparnir í 6.flokki.
Það var ekki að sjá á öðru en að allir hafi skemmt sér vel. Það verður gaman að fylgjast með strákunum næstu árin.


