Sex KR-ingar í unglingalandsliðinu á Norður-Evrópumótinu
Sex KR-ingar leika með unglingalandsliðinu á Norður-Evrópumótinu í borðtennis 26.-28. júní. Mótið er haldið í Eistlandi og er leikið í liðakeppni og einliðaleik.
Stúlknalið Íslands (leikmenn undir 19 ára aldri) er eingöngu skipað stúlkum úr KR en það skipa þær Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir, Marta Dögg Stefánsdóttir og Þórunn Erla Gunnarsdóttir. Viktor Daníel Pulgar er í liði drengja undir 19 ára aldri ásamt þremur leikmönnum úr BH. Lúkas André Ólason er í liði sveina undir 15 ára ásamt leikmanni úr HK.
Hér má sjá úrslit úr leikjum á mótinu: ELTL - Eesti Lauatenniseliit
Að mótinu loknu fara Guðbjörg Vala, Helena og Lúkas til í æfingabúðir til Noregs í boði norska borðtennissambandsins.
Viktor lék einnig með hópi leikmanna úr unglingalandsliðinu á Mega Cup í Noregi 13.-14. júní og sótti hópurinn æfingabúðir í Noregi í framhaldinu.






